Helga mætt í heimsókn
Þá er hún Helga mætt í sveitina. Hún lenti í Billund á mánudeginum og við voffarnir fórum að sækja hana. Við kíktum við í vinnunni minni á leiðinni heim þannig að hún gæti séð aðeins hvar ég er að vinna, svo fórum við í búð og svo loksins heim.
Helga kom sko færandi hendi með HELLING af íslenskum mat og nammi, slátri, sviðasultu, harðfisk, bjúgum, lakkrís, súkkulaði og ég veit ekki hvað!! Við höfðum bara aldrei séð annað eins og urðum alveg svakalega ánægðar með þetta :-)
Fyrsta máltíðin hjá henni Helgu greyinu, þegar hún loksins var komin til Danmerkur voru svo íslenskar SS pulsur hehehe. Ég bara gat ekki beðið þannig að þær kellurnar fengu að njóa þessa með mín ;-)
Þriðjudaginn tókum við bara rólega, spjölluðum saman um daginn og veginn og horfðum á sjónvarpið og DVD myndir - þvílíkt næs!!!
Í gær var svo sofið hressilega frameftir, alltaf þegar ein okkar vaknaði þá voru hinar nýsofnaðar þannig að þá fór viðkomandi bara aftur að sofa og svona gekk þetta alveg fram að hádegi! En þetta var nú samt alveg ágætt hehe. Svo vorum við í einhverjum vafa um hver dagskráin ætti að vera en á endanum var ákveðið að halda í Legoland. Og þangað keyrðum við af stað um hálf tvö - vorum komnar í Legoland um hálf fjögur, sem var alveg ágætt því þá voru öll öskrandi smákrílin farin heim með foreldrum sínum (eða svona næstum því öll hehe) og það var aðeins bærilegra að labba um.
Hitinn var orðinn alveg ágætlega mikill en Helga var búin að smyrja sig inn í sólarvörn þannig að hún var amk seif. Helga var orðin pínu rauð samt þegar við komum heim og ég var búin að taka smá lit ;-)
Á leiðinni heim stoppuðum við á Burger King og nú er mér búið að takast að gera Helgu húkked á Burger King hehe. Enda eru það bara bestu borgararnir :-)
Í dag erum við líka búnar að vera frekar rólegar, komumst í gang uppúr hádegi, og vorum eitthvað að spá í að skreppa til Þýskalands en ákváðum svo að fara bara inn í Sönderborg. Um hádegið var hitinn kominn yfir 26 gráður og við Helga vorum alveg að farast úr hita og það lagaðist ekki eftir því sem leið á daginn. Við sáum hitamæli inni í Sönderborg sem sagði að það væri 35 stiga hiti!! Og við vorum með allar rúður niðri til að ná andanum, Helga var með nefið út um gluggann eins og hundarnir hehe. Eftir smá búðarrölt í Sönderborg (reyndum samt að takmarka það vegna hitans) komum við svo við á kínastaðnum og pöntuðum take-away og sitjum núna og horfum á dvd og étum kínamat :-) Rosalega huggulegt :-)))
