WWW.LIVERPOOLSTORE.DK!!!
Jæja nú erum við orðnar svo flottar á því að við erum komnar með vefbúð!! Við verðum semsagt að selja vörur frá beint Liverpool FC (sem er enskur fótboltaklúbbur fyrir þá sem ekki þekkja til) 
Við fórum til Köben á laugardaginn að sækja lagerinn (komum heim í gær, sunnudag) og það var sko TROÐIÐ í bílinn til að við kæmum öllu með. Og þar að auki þá vorum við líka með kerru sem var alveg stútfull. Voffagreyin þurftu að vera á gólfinu frammí hjá Hönnu Sif til að komast með til baka og svo voru sætin afturí lögð niður og bara pakkað upp í loft!! Þegar skottinu var lokað þurftum við að vera þrjú til að ná að halda við og skella hurðinni þannig að allt hryndi ekki út heheh 
Svo þegar heim var komið, tók örugglega hátt í klukkutíma að tæma bílinn því að það þurfti náttúrulega að leggja þetta allt slétt út þannig að þetta væri ekki allt í krumpi. Og núna er stofan bara FULL af dóti. Endalaust magn af stuttermabolum, stuttbuxum, jökkum, böngsum, músamottum, bollum, derhúfum, lyklakippum, barnafötum, sokkum, pelum, treflum, bílaskrauti og ég veit ekki hvað!! (set inn myndir á eftir þegar ég kem heim). Sem betur fer á ég konu sem er með skipulagningaræði þannig að ég er í góðum málum
Það er sko enginn sem er betri en hún í að raða og skipuleggja svona hluti!!!
Síðan er annars niðri í augnablikinu á meðan að við erum að koma öllu í gang en ef þið kíkið á www.liverpoolstore.dk þá getiði allavegana séð að fyrirtækið okkar heitir Hafdal I/S
Og við erum bara geðveikt spenntar og vonandi á þetta eftir að ganga vel!!!!!
Og svona að lokum vil ég segja: Elsku ástin mín, þú ert yndisleg! Takk fyrir að styðja mig alltaf og vera svona góð við mig
Ég elska þig 

July 14th, 2008 at 4:43 pm
Til hamingju með nýja fyrirtækið ykkar….
July 14th, 2008 at 7:26 pm
Takk takk :-D
July 16th, 2008 at 12:30 am
Innilega til hamingju með búðina. En hvað þetta er spennandi. Nú get ég verslað allar jóla og afmælisgjafir handa Einari mínum hjá ykkur. Gangi ykkur svakalega vel:)
July 16th, 2008 at 9:35 pm
Takk!!! :-) Endilega vera í bandi ef þið sjáið eitthvað sem ykkur langar í - þið fáið “vinaafslátt” ;-)
July 20th, 2008 at 12:02 am
Hæ hæ
Innilega til hamingju með vefverslunina ykkar, vonandi á ykkur eftir að ganga allt í haginn með þetta allt saman. Ég hefði nú frekar viljað sjá Manchester United fyrir Einar til að geta verslað hjá ykkur en við eigum nú samt einhverja vini sem að eru Liverpool fan, læt Einar þá ekkert vita af kaupunum :):):) Ég var að koma úr ferðalagi af vestfjörðum og hitti Helgu þar og hún sagði mér að hún væri að koma til ykkar núna já á morgun, bara góða skemmtun öll saman…….verð að segja að ég öfunda hana smá að vera að fara, en ég fylgist þá í staðin bara með ykkur hér á síðunni, endilega vera duglegar að skrifa, kíki alltaf á ykkur.
knús knús og kossar úr Ólafsvíkinni
Svana
July 29th, 2008 at 9:36 pm
Takk fyrir það! :-) Já við stefnum nú á að færa út kvíarnar í framtíðinni (ef þetta gengur vel) og verða líka með Man.Utd. þannig að þá gætirðu amk alveg verslað við okkur ;-)
Það var rosa gaman að fá Helgu í heimsókn, við tókum lífinu bara með ró, fórum í Legoland og til Þýskalands og svo smá rúnta til Sönderborg en annars vorum við heima að púsla, horfa á dvd og bara dunda okkur. Mjög gaman!!! :-D