Blóm í garðinn
Við fórum og keyptum tvenns konar blómategundir í dag til að punta aðeins upp á palllinn og blómakerið í garðinum. Við keyptum eina stóra hortensíu sem á að fara í hornið á pallinum og svo keyptum við blóm sem heita “exacum affine” eða persian violet og þær eiga að fara í blómakerið. Þetta hlýtur að verða voða fínt :-)

Hortensían stóra

Persnesku fjólurnar
Svo er eplatréið að komast í fullan blóma, það hljóta að koma nokkur epli á það í ár :-)


May 28th, 2008 at 1:42 pm
Sælar stúlkur.
Til hamingju með allt, alveg rosalega langt síðan ég heyrði í ykkur síðast.
Garðurinn, pallurinn og sumarblómin er alveg orðið glæsilegt.
“exacum affine” heitir Mörtuvöndur á íslensku og er ræktað hér á landi sem einær inniplanta og fæst í hvítu og fjólubláu, Hortensian heitir Hindarblóm á íslensku.
Langaði bara til að deila þessu með ykkur, hafið það nú sem allra bestast.
Sjáumst vonandi fljótlega.
Bertha
May 28th, 2008 at 5:29 pm
Hæhæ!
Hey kúl, alltaf gaman að læra eitthvað nýtt! Reyndar er mörtuvöndurinn orðinn eitthvað slappur, veit ekki hvort að hann er ekki að þola beint sólarljós eða hvað. Við pössum amk alltaf upp á að vökva þannig að það er ekki það held ég.
Þið eruð alltaf velkomin í heimsókn ;-)