Snákur í paradís
Posted in H&R on May 28th, 2008Eftir að hafa sloppið við það að slá garðinn í nokkra daga vegna þurrks, kom að því að það rigndi í fyrradag og grasið tók þvílíkan kipp. Þannig að það var ekkert annað að gera en að slá garðinn og ég dreif mig bara í það. Í fyrsta hringnum var ég að koma að einu blómabeðinu og sé þá snák renna upp úr grasinu, yfir kantinn á beðinu og upp í blómabeðið. Þar hvarf hann svo. Ég skrækti eins og stunginn grís og kallaði á Hönnu Sif sem kom hlaupandi alveg í sjokki. Mig dauðlangaði að ná honum og dreif mig að finna hanska því mig langaði ekki að vera berhent að meðhöndla hann, en mér tókst því miður ekki að finna hann aftur :-(
En núna kemst ég víst ekki hjá því að fara að hreinsa til í beðinu, því Hanna Sif varð ekki hrifin af því að heyra af snáknum. Hún kvartaði reyndar undan því að ég hefði hrætt hana með því að vera að skrækja svona, en ég lofaði því að næst myndi ég bara skrækja ef að ég hefði klippt af mér tærnar með sláttuvélinni eða álíka, amk yrði nóg af blóði ;-)
Annars er bara allt rólegt, dáldítið rok í dag, en þurrt. Svo spáir víst 25 stiga hita um helgina, en þá erum við að fara tónleika!! Rock on! (eða þannig…)






























