My Weather

  • Sønderborg
  • Cloud and Visibility OK
  • Temperature: 16°C
  • Humidity: 67.5%
  • Wind: E at 30 km/h
  • Dew Point: 10°C
  • Visibility: 10km
  • Clouds: Cloud and Visibility OK
  • Barometer: 1012 hPa
  • Sunrise: 4:39 am GMT
  • Sunset: 5:57 pm GMT

Scorpion - Still loving you

Kansas - Carry On Wayward Son

Flott skegg!

Rolling Stones - Paint It Black

Jagger hrukkulaus??

Archive for April, 2008

Innkeyrslan heldur áfram

Posted in H&R on April 30th, 2008

Mér tókst loksins að klára að skera í götin fram að hurðinni, það er búið að taka langan langan tíma, en núna seinni partinn tók ég bara skorpu í þessu og rumpaði þessu af!! :-)

Fullt af myndum á myndasíðunni!

Sundlaugin á leiðinni

Posted in H&R on April 29th, 2008

Þrátt fyrir að það sé rigning í dag, erum við fullar af bjartsýni fyrir sumarið og létum vaða að panta sundlaug :-) Hún er helmingi minni en í fyrra, en ætti að vera alveg nógu stór (þá tekur líka ekki jafn rosalega langan tíma að láta renna í hana!).
Hverjir ætla að mæta í sundlaugarpartí í sumar?? ;-)))
Sundlaugin í ár

Breyting

Posted in H&R on April 28th, 2008

Þetta er pallurinn 2. júní í fyrra:

Og þetta er pallurinn í gær:

Smávegis gert í innkeyrslunni

Posted in H&R on April 27th, 2008

Mér tókst að komast aðeins í innkeyrsluna um helgina, inn á milli allra hinna verkanna sem við vorum með í gangi; mála pallinn, færa skúrinn, koma snúrunum upp, klippa runna og taka til! Nóg að gera!! Ég steypti semsagt endann hjá póstkassanum, nánar tiltekið kantsteinana, þannig að nú er sá endi eiginlega alveg búinn, mig vantaði reyndar aðeins meiri steypu til að ná alveg upp kantinn, en það kemur í næstu umferð. Þetta munar allavegana alveg helling!


Pallurinn málaður!

Posted in H&R on April 27th, 2008

Konan mín er búin að rosalega dugleg um helgina. Fyrst smúlaði hún allan pallinn í gær, og þreif hann hátt og lágt. Svo hjálpuðumst við að við að mála gólfið og nokkra stólpana þannig að þetta er að verða rosalega flott. Því miður kláraðist málningin en það er sko greinilega hægt að sjá muninn!!

Snúrur komnar upp

Posted in H&R on April 27th, 2008

Þá er ég búin að skella upp alvöru snúrum fyrir okkur kellingarnar! Við keyptum svona plastsnúrur í fyrre sem eru búnar að vera að gera mig geðveika og hafa lítið sem ekkert verið notaðar þessvegna. En núna erum við komnar með ALVÖRU snúrur, þannig að nú er bara um að gera að vera dugleg að hengja þvottinn út ;-)

Læknisferð

Posted in H&R on April 26th, 2008

Ég fór til læknis í gær til að fá mína árlegu ofnæmissprautu. Nú þegar vorið er að koma, fylgir því miður frjókornaofni þannig að ég er með endalaust “kvef”. Ég fann að núna eftir hlýindin síðustu daga þá var ofnæmið farið að verða ansi slæmt, þó svo að ég sé að taka pillur og augndropa, þannig að ég pantaði mér tíma og fékk tíma hjá einhverjum læknanema sem er tímabundið á staðnum.

Ég mætti á svæðið og var vísað inn á stofu af læknanemanum (sem ég svo komst að, að væri 28 ára!). “Já þú ætlar semsagt að fá svona ofnæmissprautu”, “já endilega” sagði ég. Hann varð pínu vandræðalegur og svona hálf afsakandi benti hann svona á hliðina á rassinum og sagði “eh..já…ég sprauta venjulega þarna“. Ég sagði bara jájá! svolítið hressilega svo hann færi nú ekki alveg í kleinu strákgreyið. Svo settumst við niður og ég spurði hann “getur verið að það sé fólk sem þurfi að fá þessa sprautu oftar en einu sinni á ári?” (af því að mér skildist það af hjúkkunni þegar ég hringdi að þau vildu ekki gefa fólki þessa sprautu oft og því væri beðið eins lengi og hægt væri með að gefa hana). Hann var eitthvað að gramsa í skúffunni að leita að sprautu og nál, leit svo upp og sagði “ha, ég veit það ekki, ég sprauta bara fólk“. Ég átti pínu bágt með mig en náði að halda aftur að mér að fara að hlæja. Hann hélt áfram að róta með nálarnar og var kominn með tvær eða þrjár mismunandi stærðir en var alveg miður sín yfir því hvað þær voru stórar. “Þetta eru algjörar hrossanálar!!“. Mér fannst ég verða að róa hann svo ég sagði “já ég hlýt nú að lifa þetta af, ég finn örugglega ekkert fyrir þessu” en varð samt pínu “ó ó, afhverju sagði ég að það væri í lagi að fara til læknanema!!”

“Já en þær eru samt alveg rosalega stórar!” sagði hann aftur og ég bara kyngdi og ákvað að bara brosa pínu nervust til hans, svona til að telja kjark í hann…eheee! Svo stóð hann upp og horfði á mig, þannig að ég ákvað að standa upp og bara kippa niður buxunum öðru megin svo færi nú ekki að vandræðast með að biðja mig um að taka buxurnar niður. Hann fór að ýta allsstaðar á mjaðmabeinið og ég hugsaði með mér “ekki ætlar hann að sprauta þessu inn í liðinn hjá mér!!” en svo sagði hann “ég ætla að sprauta hér!” og ýtti fast rétt fyrir neðan mjaðmabeinið. Ég sagði bara “allt í góðu!” og hann taldi niður í stunguna. Eitt augnablik hugsaði ég “ÁÁÁ þetta verður sárt!!!” og fór í smá paník en ákvað að bíta það í mig og reyna að vera hugrökk. Svo kom stungan…og ég fann varla fyrir henni, svo ég segi “iss þetta var nú ekki neitt, ég hef nú lent í verra en þessu”, svona til að láta honum líða betur. Þá segir hann “já þegar þú eignaðist barn??” “Huh!?!?!! Neinei! þegar það var rifin af mér nögl og deyfingin virkaði ekki”

Svo spjölluðum við aðeins saman, ég þakkaði fyrir mig og keyrði heim á leið….

Sunnudagur

Posted in H&R on April 21st, 2008

Við vorum svaka duglegar í gær (sunnudag). Byrjuðum á því að helluleggja fyrir framan hurðina, og svo var farið í að klippa runnana. Þeir eru orðnir frekar háir, enda ekki klipptir í fyrra og svo eru komnir svaka brómberjaþyrnirunnar inn í runnana þannig að þetta er ekki hættulaust ;-) Ég var búin að vera að væflast í einhverjum tröppum til að ná að klippa alveg ofan af toppnum, en svo fann ég upp á nýrri tækni. Ég kastaði mér bara inn í runnana með rafmagnsklippurnar og hamaðist svo eitthvað út í loftið. Þetta virkaði bara þrælvel, ég náði að klippa alveg helling af, og mun hraðar en þegar ég var að nota tröppurnar. Vandamálið kom bara í ljós eftirá. Ég var í stuttermabol og þegar ég kom inn þá sá ég að ég var öll rispuð og rifin eftir þyrnirunnana og greinarnar :-/ En ég á svo yndislega konu, sem bar á mig Íbúfen krem og kyssti svo á bágtið :-)

Hurðin komin í grindverkið!

Posted in H&R on April 20th, 2008

Ég fór og keypti hina lömina í hurðina (komst að því þegar ég ætlaði að setja hurðina upp að ég var með lamir fyrir sitthvora hliðina - eina hægra megin og eina vinstra megin) þannig að nú gat ég loksins skellt henni upp! Það kom mér á óvart hvað það breytti miklu þegar maður horfir inn innkeyrsluna, að hurðin sé komin. Nú þarf bara að klára að mála hana og svo skella spítunum upp á hinni hliðinni :-)


Alltaf eitthvað að gerast

Posted in H&R on April 16th, 2008

Það var verið að reka yfirmann minn þannig að ég á dálítið erfitt með að einbeita mér núna og datt í hug að blogga aðeins. Ég var að setja inn nýtt kerfi fyrir síðuna um daginn og m.a. sem ég get séð núna er ef fólk hefur komið inn á síðuna okkar frá Google og hvaða leitarorð það hefur notað inni á Google. Og það er eiginlega dáldið skondið að sjá hvað fólk er að leita að þegar það álpast inn á síðuna okkar. Hérna er smá listi yfir leitaratriði:
* Hjónabandsráðgjöf (hmmm??)
* Ryksuga sjálf
* Bjöllur 2 cm
* Lessur (að sjálfsögðu!)
* Hafdal
* Parketlögn
* Innkeyrsla
* Draumavélin
* Verkfræði brandarar
* Fylltar paprikur
* Gardínur
* Skólinn fordómar
* Hanna Sif blogg
* Gossip

Jahá, það er víst ekki hægt að segja að við séum ekki með fjölbreytta umræðu hérna á síðunni hehe.

Eigðu góðan dag og njóttu lífsins!

Óskar Þorgils Stefánsson

Posted in H&R on April 13th, 2008

Ég fékk þær fréttir í morgun þegar ég vaknaði að elskulegur afabróðir minn hann Óskar væri dáinn. Ég veit að hann afi minn tekur vel á móti honum hinumegin, ætli þeir sitji ekki núna og drekki morgunkaffi saman og spjalli um daginn og veginn eins og þeir gerðu alltaf.

Ég vil senda fjölskyldu hans mínar allra bestu kveðjur og vona að þau geti fundið huggun í öllum góðu minningunum sem hann skilur eftir sig.

Hérna eru þeir Óskar og afi saman (og amma að skenkja kaffið):
-

Germaní hír ví komm

Posted in H&R, Skemmtun on April 12th, 2008

Við skelltum okkur til Þýskalands í dag með Arnheiði og Dennis. Byrjuðum reyndar í Sönderborg, þar sem stefnan var sett á H&M þar sem Hanna Sif átti inneignarnótu sem hún vildi endilega nota. Það vildi svo heppilega til að klukkan var orðin 10 mínútur í 14 þegar við komum inn og búðin lokar kl. 14 á laugardögum. Þannig að Arnheiður og Hanna Sif höfðu ekki mikinn tíma til að skoða. Enda endaði það þannig að ég greip með mér einar buxur sem pössuðu akkúrat fyrir inneignarnótunni og Hanna Sif fékk meira að segja eina krónu í afgang! Segiði svo að maður kunni ekki að versla föt ;-) Það verður víst að fylgja sögunni að Hanna Sif náði ekki að versla sér neitt :p

Svo ákváðum við að halda áfram sem leið liggur til Þýskalands, nánar tiltekið Flensborgar. Þar keyrðum við beint í Gallerí (svaka fín verslunarmiðstöð) þar sem við kíktum í raftækjabúð og svo í frábæru ísbúðina (nei mig var ekki að dreyma:-)) ). Við Dennis fengum okkur rosalega góða og rosalega flotta ísrétti (var ég búin að segja að þetta var gott?), ég náði ekki einu sinni að klára minn ís því hann var svo stór!

Svo röltum við um Gallerí, Hanna Sif fann sér svaka fín sundföt og Arnheiður verslaði sér undirföt, á meðan að við Dennis þjáðumst þegjandi (svona næstum því). Við kíktum á allar 4 hæðirnar og svo var ákveðið að kíkja á Dionysos, grískan veitingastað sem við höfum farið á einu sinni með nágrönnum okkar.

Það var frekar margt fólk mætt þar í kvöldmat en við vorum það heppin að geta fengið borð eiginlega um leið. Matseðilinn var allur á þýsku þannig að nú var bara að reyna að rifja aðeins upp af þýskunni sem maður lærði í fjölbraut og stauta sig svo framúr þessu. Okkur tókst öllum að panta eitthvað gott - Hanna Sif var samt eiginlega hugrökkust (finnst mér amk). Hún pantaði sér rækjur…með augum og alles!! Frekar úlekkert fannst mér, en hún plokkaði þær sundur og saman og var bara komin með þvílíka tækni í þetta í lokin. Við fengum öll mjög góðan mat og aðalréttur (vel útilátinn) kostaði innan við 100 kr. Þannig að þetta var bara alveg ágætt :-)

Hanna Sif og rækjan

Eftir matinn var þreytan farin að læðast að, þannig að við brunuðum bara heim í kvöldsólinni :-)

P.s. Var að kíkja á heimasíðuna hjá veitingastaðnum, mæli endilega með því að þið prófið að lesa síðuna á ensku (smellið á enska fánann og þá kemur enska útgáfan upp). Ég veit ekki alveg hver hefur hjálpað þeim við þýðinguna frá þýsku yfir til ensku, en vúff…. Frekar góðar setningar þarna inni á milli:
Also for your children we find time with pleasure.” ??

Föstudagurinn langi….svona næstum

Posted in H&R on April 11th, 2008

Þetta er búinn að vera ansi langur dagur finnst mér, enda er ég á leiðinni upp í rúm núna. Maður er orðinn svo svakalega lélegur í að vaka frameftir svona á eldri árum :lol_ee:
Frúin er örugglega steinsofnuð núna og ég er í rauninni að vaka frameftir á mínum mælikvarða, þó svo að klukkan sé rétt rúmlega 9 að kveldi til. Venjulega fer ég að sofa uppúr 8 (já 8!) og svo vakna ég klukkan 5, það gefur svona ca 9 tíma svefn (ef ég tel rétt) og það er algjört lágmark fyrir mig! Ég reyni líka að bæta þennan “svefnskort” upp um helgar…svona aðeins :tongue_laugh_ee:

Hanna Sif fékk iðjuþjálfann sinn í heimsókn í dag og þær spjölluðu víst saman í 2 tíma, nóg að tala saman þar.

Ég stakk af úr vinnunni hálftíma fyrr en ég (m)átti :tongue_laugh_ee: kom við í búð og keypti í smá mexíkanska veislu og svo mallaði ég aðeins handa okkur þegar ég kom heim. Svo var bara horft á Supernatural í tímavís, þar til að “season” 1 var búið (og ég líka!).

Hrikalegt að horfa á svona spennuseríur, við þurftum stundum að spóla áfram bara til að geta haldið út spennuna :lol_ee: Algjörar kellingar!! :smile1_ee: :embarrassed_ee: En þetta eru bara ágætis þættir svosem, alveg ágætis afþreying.

Eftir allt þetta yfirnáttúrulega þá fór ég að dúlla mér í heimasíðunni, er búin að breyta aðeins til (og vonandi bæta), setti inn nýja linka (reynið að finna hverja hehe) og bætti inn þessu Youtube í hliðinni. Það er allt hægt í þessum heimasíðuheimi, maður þarf bara að vita hvar á að leita!

Svo byrjaði að rigna uppúr hádegi (ef ekki fyrr) og það er ennþá rigning núna. Svo á víst að vera smá rigning á morgun og brjáluð rigning á sunnudaginn :bigsurprise_ee: Ég skil bara ekki hvað þetta á að þýða. Ég var búin að plana að halda áfram með innkeyrsluna um helgina, enda búin að taka því rólega núna í vikunni. En ég get þó amk huggað mig við það að næsta helgi er löng helgi :tongue_wink_ee: :grin1_ee: :lol_ee:

Við þurfum að fá svona galla á Lúlla…

Posted in H&R on April 11th, 2008


mínus Bandaríska fánann.

Coca Cola :-)

Posted in H&R on April 11th, 2008

Annar góður dagur :-)

Posted in Húsið okkar on April 6th, 2008

Við erum aftur búnar að vera svaka duglegar, Hanna Sif var að mála grindverkið og ég var að steypa kantsteina og klára þröskuldinn í girðingunni. Semsagt, bara nóg að gera :tongue_laugh_ee:
Hanna Sif að mála

Góður dagur!

Posted in H&R, Húsið okkar on April 5th, 2008

Við erum búnar að vera rosa duglegar í dag. Nú er allur sandurinn farinn úr innkeyrslunni og búið að skera í eiginlega alla línuna fram að hurðinni. Allt að gerast hérna!

Ljóskubrandari

Posted in Brandarar on April 4th, 2008

Ljóskan hringir í kærastan og segir: “Viltu vera svo vænn að koma hjálpa mér
að pússla rosalega erfitt pússluspil, ég veit ekki laveg hvernig ég á að
byrja ?”
Read the rest of this entry »

Verkfræðingar og lögfræðingar

Posted in Brandarar on April 4th, 2008

Jón verkfræðingur deyr og fer auðvitað upp til himna eins og allir verkfræðingar.
Þegar þangað kemur leitar Pétur í nafnalistanum og segir svo: “Því miður Jón minn, þú ert ekki ekki á listanum. Þú verður að fara niður”.
Read the rest of this entry »

Árekstur

Posted in H&R on April 4th, 2008

po 0o = smá skilaboð frá Dúllu…
Það var keyrt á Hönnu Sif áðan, hún kom bara keyrandi eftir aðalvegi og svo kom bíll út af bensínstöð og keyrði í hliðina á bílnum. Hann náði að rispa næstum því alla bílstjórahliðina, mjög effektivt hjá honum…
Hönnu Sif brá frekar mikið (skiljanlega), en það verður að líða og bíða til að sjá hvort hún hefur fengið einhvern hnykk á sig.

Hurðin að taka á sig mynd

Posted in Húsið okkar on April 4th, 2008

Þetta er semsagt hurðin sem verður í girðingunni…

Sykur

Posted in H&R on April 2nd, 2008

½ kg