My Weather

  • Sønderborg
  • Cloud and Visibility OK
  • Temperature: 16°C
  • Humidity: 67.5%
  • Wind: E at 30 km/h
  • Dew Point: 10°C
  • Visibility: 10km
  • Clouds: Cloud and Visibility OK
  • Barometer: 1012 hPa
  • Sunrise: 4:39 am GMT
  • Sunset: 5:57 pm GMT

Scorpion - Still loving you

Kansas - Carry On Wayward Son

Flott skegg!

Rolling Stones - Paint It Black

Jagger hrukkulaus??

Archive for January, 2008

Komst í gegnum daginn

Posted in Ferðalög, H&R on January 29th, 2008

Jæja þá er ég komin heim á hótel eftir langan og strangan dag. Þetta var mjög skemmtilegt samt, alls ekki þannig að mér hafi leiðst neitt, og ég lærði helling af nýjum hlutum. :clap_tb: Tannpínan kom akkúrat þegar ég var að klára þannig að það passaði ágætlega að ég gat farið heim á hótel, tekið verkjapillur og slappað af :thumbup_tb: Eiginlega þyrfti ég að vera að vinna núna en ég get bara ekki komið mér í það, sit bara við tölvuna og pikka þetta og horfi á Discovery :bye_tb: Svaka stuð :tongue1_tb: Það er annars dáldið kalt í Köben, þurrt, en frekar kalt. Það er svona að koma norður á bóginn, það er alltaf svo hlýtt í sveitinni heheh.

Tannpína í Köben

Posted in H&R on January 28th, 2008

Nú er ég komin til Kaupmannahafnar, verð í heimsókn hjá “útibúinu” í Avedöre fram á fimmtudag/föstudag. Ég þurfti annars að byrja vikuna á því að fara til tannlæknis, enda búin að vera að drepast í tannpínu síðan á föstudaginn. Ég hélt að það hefði brotnað upp úr fyllingu, en það kom í ljós að það var komin stór hola út frá einni silfurfyllingunni. Tannlæknirinn sagði mér að ég þyrfti að fara að láta skipta silfurfyllingunum út með plastfyllingum því að það er víst takmörkuð ending á silfrinu. En allavegana, ég er bara búin að vera að DEYJA úr tannpínu :cry_tb: Og það skánaði því miður ekki eftir tannlækninn, því að hann þurfti að bora svo svakalega mikið. Svo er víst byrjuð að myndast önnur hola við hliðina á þessari tönn :cry_tb: þannig að ég þarf að fara aftur í næstu viku til að klára.

Svona vorum við nú sætar einu sinni ;-)

Posted in H&R on January 27th, 2008

Sjá meira á www.hafdal.smugmug.com

Hvað er svona fyndið?

Posted in Skemmtun on January 26th, 2008


Sjá meira á www.hafdal.smugmug.com

Gamlar myndir

Posted in H&R on January 26th, 2008

Ég er að fara í gegnum gömlu myndirnar okkar og sortera þær aðeins. Þær eru á geisladiskum og dvd diskum út um allt þannig að núna er ég að setja þær allar á annan harða diskinn hjá mér og svo nota ég MS Digital Image Suite Library til að setja lykilorð á myndirnar þannig að ég geti leitað í þeim. Mjög sniðugt semsagt. Því miður virðast einhverjar af myndunum vera skemmdar, þannig að það er kannski ekki seinna vænna að ná þeim af geisladiskunum.

En allavegana, ég er búin að rekast á nokkrar ansi góðar myndir þarna og er að spá í að skella inn einni og einni sem mér lýst vel á hér á síðuna og svo er ég að bæta inn myndaalbúmum á myndasíðuna okkar. Hellingur að gerast sko!

Hvað er áhugaverðast á Íslandi?

Posted in H&R on January 21st, 2008

Ein samstarfskona mín er að undirbúa ferð til Íslands í sumar. Hún er víst ein af þessum hestakonum, og langar mikið í ferðalag á hestbaki. Hún fór að spyrja mig hvað væri gott og gaman að skoða á Íslandi, og hvort ég þekkti eitthvað til þessara fyrirtækja sem eru að skipuleggja hestaferðir, en þar sem ég er tóm (svona fyrir utan Gullfoss og Geysi, Bláa Lónið og þessa túristastaði) og voða lítil hestakona, þá datt mér í hug að athuga hvort að einhver hafi uppástungu fyrir mig - svona til að ég geti virkað pínu klár þegar ég fer að leiðbeina henni :-)

Heimsókn í sveitina

Posted in Gestir, H&R, Húsið okkar on January 21st, 2008

Hann Árni Siggi var svo indæll að kíkja í heimsókn til okkar um helgina og hjálpa okkur að klára grindverkið (þeas aðra hliðina - hin verður að bíða þar til búið er að mála). Hann kom með lestinni á föstudagskvöldinu og svo var vaknað snemma og farið í gang með að saga, negla og égveitekkihvað. Við vorum nú ansi heppin með veður á laugardeginu, það var ágætlega kalt, en þurrt og sólin birtist af og til.

Sunnudaginn var líka byrjað snemma, nóg að gera, og okkur tókst að klára grindverkið - allt nema hurðina, og það var bara af því að okkur vantaði meira efni. Lúlli var frekar mikið svekktur þegar hann sá að girðingin var búin, því nú getur hann ekki lengur stungið af! Svo hjálpaði hann Árni okkur líka með að setja upp loftlista í forstofuna, þannig að það er eiginlega búið, límið kláraðist því miður (lélegur undirbúningur, ég veit!) þannig að það vantar smá bút. En nú er orðið ROSALEGA fínt hjá okkur og ég hef alveg nóg að “dunda” mér við þar til Árni kemur næst í heimsókn hehehe :-)

Loksins eitthvað að gerast

Posted in Húsið okkar on January 5th, 2008

Ég er búin að vera í viku að mála forstofuna, ekki alveg sú sneggsta í þessu :s Reyndar er ég búin að fara sex umferðir yfir loftið og tvær yfir veggina, tvær yfir dyrakarmana og svo tvær yfir útidyrahurðina. En þetta er að verða rosa fínt, og nú er ég að setja nýtt á gólfið, svona parket sem lítur út eins og flísar, mjög þægilegt, og auðveldara að að leggja. Ég misreiknaði mig aðeins þegar við vorum að versla þetta í dag þannig að nú er gólfið bara hálfklárað, en ég býst nú við að klára þetta á morgun. Þ.e.a.s að leggja á gólfið. Svo er eftir að setja upp loftlista, skipta um takka á ljósunum, hengja upp fatahengið, mála yfir karmana aftur, og svo skipta um ljós væntanlega. Og þá verður forstofan fyrsta herbergið í húsinu sem er alveg búið!

Nýr bíll?

Posted in H&R on January 5th, 2008

Þar sem gamli Opelinn minn er orðinn ansi ryðgaður og kemst ekki gegnum skoðun nema við gerum við hann fyrir mörg þúsund danskar krónur, hef ég verið að leita mér að nýjum bíl yfir Jólin og ég er búin að festa mér (þannig að það er eiginlega alveg öruggt að ég kaupi hann) Hyundai Getz 1,5 CRDi Dísel árgerð 2004. Mjög fínn bíll og aðeins keyrður 81.000 km. Hann kemst ca 23 km á líternum þannig að það er ansi mikill munur frá Opelnum sem komst u.þ.b. 12 km á líternum! Þar að auki er þetta díselbíll sem er enn hagstæðara, þar sem díselinn er ódýrari en bensínið :grin1_ee:

Hyundai Getz