My Weather

  • Sønderborg
  • Cloud and Visibility OK
  • Temperature: 16°C
  • Humidity: 67.5%
  • Wind: E at 30 km/h
  • Dew Point: 10°C
  • Visibility: 10km
  • Clouds: Cloud and Visibility OK
  • Barometer: 1012 hPa
  • Sunrise: 4:39 am GMT
  • Sunset: 5:57 pm GMT

Scorpion - Still loving you

Kansas - Carry On Wayward Son

Flott skegg!

Rolling Stones - Paint It Black

Jagger hrukkulaus??

Archive for November, 2007

Helgin búin

Posted in H&R on November 18th, 2007

Þessi helgi flaug hjá eins og ég veit ekki hvað. Allt í einu er bara komið sunnudagskvöld og við á leiðinni í háttinn. Við erum samt búnar að vera duglegar um helgina - ekki í húsinu, heldur okkur sjálfum. Hanna Sif er búin að fara í ræktina föstudag, laugardag og sunnudag og ég og voffarnir erum búin að fara í göngutúra alla þessa daga líka :-) Í gær fórum við m.a.s. með Hönnu Sif til Sönderborg og löbbuðum í Sönderskov, hundunum fannst það rosalega spennandi.
Kegnæs
Read the rest of this entry »

Frábært lag! Boom Like That - Mark Knopfler

Posted in Skemmtun on November 12th, 2007

Lagið fjallar um Ray Krock - manninn sem að keypti MacDonalds af MacDonalds-bræðrunum.


Það er kalt!

Posted in Gestir, Húsið okkar on November 10th, 2007

Gestir í sveitinni

Posted in Gestir on November 9th, 2007

Við erum komnar með gesti til okkar. Árni, Kristín og Sveinn Egill börðust gegn storminum sem herjar á Danmörku núna og komust alla leið hingað út í sveit. Sveinn Egill var ekki neitt voðalega glaður að sjá okkur kellingarnar, fór bara að skæla um leið og hann kom inn um dyrnar - en við skrifum það bara á ferðaþreytu :p

Kynvillingar…

Posted in Blogg on November 7th, 2007

Ég kíkti á síðuna www.skapari.com sem virðist vera rekin af kynþáttahöturum. Mig grunaði að samkynhneigðir fengju örugglega ekki að vera “í friði” hjá þeim - og hafði rétt fyrir mér. Þetta hræðir mig svosem ekki en mér finnst sorglegt að fólk hafi ekkert betra að gera við tímann. Svo er spurningin - hvað flokkast sem að ganga of langt (sbr í textanum hér fyrir neðan).

Read the rest of this entry »

Nýi póstkassinn kominn upp

Posted in Húsið okkar on November 6th, 2007

Þá er nýi póstkassinn kominn í gagnið, póstmanninum örugglega til mikillar gleði, þar sem hinn hefur verið á flakki hingað og þangað í innkeyrslunni hjá okkur. Hann var líka orðinn dáldið beyglaður greyið og það þurfti virkilega lagni og þolinmæði til að ná að opna hann = ekki alltaf hægt.

En…núna er þessi nýi kominn upp og við erum voða ánægðar með hann :jittery_tb:

Póstkassinn

Grindverkið ennþá í vinnslu

Posted in Húsið okkar on November 6th, 2007

Ég náði að komast aðeins lengra með grindverkið síðustu tvær helgar - 3 bil urðu það tæplega (mig vantaði 3 spýtur til að geta klárað 3ja bilið alveg). Svo náði ég að mála slatta, reyndi samt að fókusera á þann hluta af grindverkinu sem póstkassinn á að koma á. En nú fer að koma að því að ég geri hurðina - spennó :P

Grindverk