5 ár flogin hjá!
Posted in H&R on September 16th, 2007
Fleiri myndir frá þessum frábæra degi hér!
Við fórum út að borða í gærkvöldi á veitingastaðnum hérna á hótelinu (við skiptum um hótel, þar sem Hönnu Sif tókst að finna ódýrara hótel
). Veitingastaðurinn heitir La Cocotte og er víst voða fínn. Við fengum þriggja rétta kvöldverð inni í tilboðinu sem við fengum þannig að við vorum bara flottar á því ![]()
Í tilefni þess að við eigum 5 ára brúðkaupsafmæli höfum við ákveðið að skella okkur til Köben. Við erum m.a.s. það flottar á því að við erum búnar að bóka hótel Høje Taastrup, þar sem við verðum frá fimmtudagskvöldi til sunnudags
Þetta verður algjör afslöppunarferð þar sem við ætlum bara að njóta þess að vera saman 
Eins og sum ykkar vita kannski þá er ég núna að vinna hjá fyrirtæki sem framleiðir ostahleypi - þeas ensími sem fær mjólk til að hlaupa og verða að osti. Síðan ég byrjaði í vinnunni hef ég fengið nýja sýn á osta, enda koma þeir sem eru að vinna með mér með hina ýmsu osta sem við svo smökkum í morgunkaffinu á föstudögum. 
Þar sem það er nú farið að kólna ansi mikið þá urðum við að drífa í því að skella upp gardínum í stofunni. Þar er veggur sem er næstum því allt gluggar þannig að það kemur kuldi þar í kring. Þrátt fyrir hor og hálsbólgu skoppaðist ég í það að koma gardínunum upp og núna er þetta voða flott 

Það er búið að vera hasar hér síðan fyrir klukkan átta í morgun. Loksins, loksins var byrjað á að hreinsa út innkeyrsluna okkar og setja undirlag fyrir hellur í staðinn
Þeir voru tveir í þessu saman, annar á gröfu og hinn á vörubíl og ég stóð og horfði á og þóttist vera voða dugleg 

Ég var að tala við nágrannann í byrjun ágúst þegar við heyrðum þrusk við endann á innkeyrslunni hjá þeim (sem liggur upp að garðinum hjá okkur). Ég sá nú ekki neitt en hún granna mín sagðist hafa séð litla slöngu. Seinna sama daginn náði hún svo myndum af “krílinu”.

Fleiri myndir á myndasíðunni!