Fékk vinnu í Helvíti:-p
Posted in H&R on July 12th, 2007Það er allt í fullum gangi hjá okkur í sveitinni, og við alveg að springa úr hamingju :grin: Það er svo mikið við að vera og allt er svo yndislegt :grin: Við erum komnar á fætur yfirleitt fyrir sex á morgnana, Rakel er mætt í vinnu kl. 7 eða fyrr, og ég hef nóg við að vera yfir daginn þar til frúin kemur heim, og þá förum við yfirleitt saman í að vinna í húsinu okkar. Þessa dagana erum við að byggja girðingu í kringum garðinn, og eftir það verður innkeyrslan tekin í gegn. Planið er að helluleggja þar, en við ætlum að byrja á að grafa allt upp og setja möl, sem við látum svo sitja fram að næsta sumri og helluleggjum þá. Á næstu dögum ætlum við svo að fá tilboð í nýja glugga, og vonandi náum við að skifta út að minnsta kosti nokkrum gluggum fyrir veturinn. Read the rest of this entry »
