My Weather

  • Sønderborg
  • Cloud and Visibility OK
  • Temperature: 16°C
  • Humidity: 67.5%
  • Wind: E at 30 km/h
  • Dew Point: 10°C
  • Visibility: 10km
  • Clouds: Cloud and Visibility OK
  • Barometer: 1012 hPa
  • Sunrise: 4:39 am GMT
  • Sunset: 5:57 pm GMT

Scorpion - Still loving you

Kansas - Carry On Wayward Son

Flott skegg!

Rolling Stones - Paint It Black

Jagger hrukkulaus??

Archive for June, 2007

“Stormur” á Kegnæs

Posted in H&R on June 27th, 2007

Haldiði að það hafi bara ekki verið rok í morgun þegar við vöknuðum!  Pullurnar sem voru á garðsettinu okkar voru foknar út í garð og krúttlega tómatatréið mitt var oltið á hliðina.  Þegar ég keyrði í vinnuna sá ég ruslatunnur úti á götu og kornið á ökrunum var bara búið að leggjast flatt - hvað gera danir nú, hugsaði ég með mér.

Read the rest of this entry »

Brotin gleraugu og brotið framljós

Posted in H&R on June 27th, 2007

Ég og bílinn minn eigum ýmislegt sameiginlegt.  Um daginn þegar ég var að bakka bílnum hennar HS framhjá mínum bíl, tók ég eftir því að annað framljósið var alveg í smalli.  Þannig að ég varð að fjárfesta í nýju framljósi - sem ég er reyndar ekki ennþá búin að ná að setja í/á bílinn (ég kenni bara veðrinu um það framtaksleysi). 

Read the rest of this entry »

Nýja draumavélin mín! :-)

Posted in H&R on June 23rd, 2007

Það eru komnir nokkuð margir mánuðir síðan að myndavélin mín eyðilagðist og ég læt mig dreyma um að fá nýja myndavél. Ég er búin að finna þá sem mig langar í og það er þessi:

Draumavélin

Hún er m.a. 6 mpix, 12x optical zoom sem samsvarar 36-432mm linsu!!! Bara hrein geðveiki!! Og svo er hún bara rosalega flott!!!! :-)

Bílskúrs-stuð

Posted in H&R, Húsið okkar on June 23rd, 2007

Við byrjuðum daginn snemma til að koma sem mestu í verk í dag. Fyrst fórum við í rúmlega hálftíma göngutúr hérna í kring og om níuleytið vorum við komnar út í gám og byrjaðar að grafa út. Nágrannarnir okkar voru svo indæl að lána okkur kerru þannig að við gátum rúllað út í endurvinnslu með fullt af dósum - enginn pantur á Þýskalandsdósum, og við erum svo náttúruvænar að við viljum ekki bara henda þeim í ruslið :P

Read the rest of this entry »

Hinn endalausi bílskúr

Posted in H&R on June 22nd, 2007

Góðan dag! Ég er barasta í fríi í dag, en það er svosem ekki neitt á döfinni að slaka á. Við komumst nefninlega að því þegar gámakallinn kom og ætlaði að sækja gáminn, að þakplöturnar sem við vorum búnar að henda ofaní gáminn eru úr asbesti! Þannig að núna þurfum við að eyða helginni í að rífa allt úr gámnum, taka þakplöturnar frá og svo henda öllu inn í gáminn aftur!

Read the rest of this entry »

17.júníveður

Posted in Atburðir, H&R on June 17th, 2007

Það er sko ekta 17.júní veður hérna í sveitinni. Alveg GRENJANDI rigning! En það er svosem voða kósí, bara verst að maður getur voða lítið unnið úti þegar það er svona mikil rigning :/ En við horfðum bara á IDOL í staðinn, þeas þangað til að rigningin fór að trufla útsendinguna :P Í gær kíktum við aðeins inn í Sönderborg, fórum á “17.júní” íslendingafélagsins hérna, bara svona hæ og bæ reyndar.

Read the rest of this entry »

Bílskúrinn farinn!

Posted in Húsið okkar on June 16th, 2007

Þá er bílskúrinn okkar horfinn. Árni byrjaði á honum þegar þau komu í heimsókn og planið var að klára hann síðustu helgi. Þannig að Hanna Sif pantaði gám til að henda öllu draslinu í og við byrjuðum að saga bílskúrinn í búta og henda í gáminn. Hitinn var eiginlega óbærilegur, tæpar 30 gráður þannig að það rann af manni svitinn. Þetta gekk ágætlega til að byrja með þangað til að Hönnu Sif varð litið upp í þakið (það sem eftir var af þakinu þeas). Þar blasti við alveg ágætlega stórt vespubú.

Vespubú

Read the rest of this entry »

Takk fyrir komuna :-)

Posted in Gestir, H&R, Húsið okkar on June 8th, 2007

Gestirnir eru löngu komnir og farnir en við höfum bara ekki haft tíma til að skrifa neitt um heimsóknina fyrr en núna! Það var, eins og alltaf, rosalega gaman að sjá þau öllsömul, og Sveinn Egill hafði frænkur sínar alveg í vasanum, eins og alltaf ;-) Hann verður bara sætari og sætari, ótrúlegt en satt.
Frænka með litla frænda

Read the rest of this entry »

Gestirnir komnir og allt að verða vitlaust

Posted in Gestir, H&R, Húsið okkar on June 2nd, 2007

Gestirnir okkar komu í gærkvöldi eftir langan bíltúr. Það var nú svosem ekki mikið gert annað en að borða kvöldmat og svo spjalla aðeins. Sveinn Egill var eldhress þrátt fyrir að hafa setið 6 tíma í bílnum - það hlýtur að vera sveitaloftið, það bætir, hressir og kætir ;-)

Dagurinn í dag byrjaði frekar rólega, Sveinn Egill svaf frameftir þannig að fullorðna fólkið reyndi að sofa lengur líka. Eftir morgunmat fóru Kristín og Hanna Sif til Þýskalands að versla á meðan við hin fórum fyrst til Augustenborg að skoða verðandi heimilið hennar Arnheiðar og svo til Sönderborg að versla.

Read the rest of this entry »