Nóg að gera!
Posted in Húsið okkar on April 28th, 2007Þá er maður kominn í helgar”frí” og það er um að gera að reyna að koma einhverju í verk á þessu heimili. Ég brunaði inn í Sönderborg í dag, fór og keypti STÓRA sundlaug (allir boðnir í súper sundlaugarpartí!) og svo keypti ég lítið og sætt eplatré, agúrkuplöntu og tómataplöntu. Svo keypti ég líka jarðarberjafræ, gulrótarfræ og svona sitt lítið af hverju í litla garðinn sem við ætlum að búa til :P





