My Weather

  • Sønderborg
  • Cloud and Visibility OK
  • Temperature: 16°C
  • Humidity: 67.5%
  • Wind: E at 30 km/h
  • Dew Point: 10°C
  • Visibility: 10km
  • Clouds: Cloud and Visibility OK
  • Barometer: 1012 hPa
  • Sunrise: 4:39 am GMT
  • Sunset: 5:57 pm GMT

Scorpion - Still loving you

Kansas - Carry On Wayward Son

Flott skegg!

Rolling Stones - Paint It Black

Jagger hrukkulaus??

Archive for March, 2007

Búin að skila!

Posted in H&R on March 31st, 2007

Stórir hlutir að gerast hér - ég náði að klára verkefnið mitt Í FYRRADAG NB - og það fór í póst í gær:D Þannig að þá er það afgreitt;) Nú tek ég nokkra daga í pásu frá náminu, en held svo áfram, því það bíða ennþá 3 verkefni eftir mér.
En sem betur fer get ég tekið mér pásu, því þá get ég farið að hjálpa konunni minni að koma húsinu í stand:) Read the rest of this entry »

Brjálað að gera

Posted in Húsið okkar on March 30th, 2007

Þá er búið að mála 6 umferðir yfir hluta af stofuloftinu og það er orðið bara ansi fínt (á þeim hluta :P ).  Svo er búið að mála þrjá veggi ljósbrúna, leggja gólflista og koma sófasettinu aftur fyrir í sjónvarpshorninu.  Read the rest of this entry »

Lærleggur af manni fannst…

Posted in H&R on March 28th, 2007

Ég er búin að vera að renna í gegnum Lögberg (dagblað sem Vestur-Íslendingar gáfu út) og rakst á eftirfarandi grein sem mér fannst pínu skondin :P

Read the rest of this entry »

Byrjuð að mála stofuloftið :s

Posted in H&R on March 28th, 2007

Eins og venjulega er búið að vera nóg að gera hérna í sveitinni í dag.  Ég er byrjuð að mála loftið í stofunni, sem er búið að vera stóra áhyggjuefnið hjá okkur síðan við fluttum.  Við máluðum loftið í svefnherberginu og það tók ansi margar umferðir og stofuloftið er talsvert stærra en það loft.

Read the rest of this entry »

Nóg að gera í sveitinni

Posted in H&R on March 27th, 2007

Þá er ég loksins búin að klára parketlagninguna (í þetta skiptið - maður veit aldrei hvað gerist í framtíðinni :P ) og byrjuð að leggja gólflista í stofunni og á ganginum.  Svo er ég búin að vera að sníða til lista sem koma í stað þröskulda og festa þá þannig að þetta er allt að skríða saman hérna.

Read the rest of this entry »

The monster in our garden!

Posted in H&R on March 25th, 2007

 Jæja ég náði mynd af þessu furðudýri sem er í garðinum hjá okkur!  Einhver sem veit hvað þetta dýr heitir??  Það sést nú ekki nógu vel en lappirnar og fálmarnir eru fjólubláir.

Búin að leggja parketið á stofuna!! :-)

Posted in H&R on March 24th, 2007

Rok á laugardegi

Posted in H&R on March 24th, 2007

Ég er ekki ennþá búin að parketleggja stofuna og ganginn en er mjög nálægt endinum.

 

Read the rest of this entry »

Er hægt að vera sætari??

Posted in H&R on March 22nd, 2007

Parketlögn

Posted in Húsið okkar on March 22nd, 2007

Ég hafðist handa við að leggja parket á stofuna í dag.  Það er búið að vera planið frá upphafi að leggja parket þar, enda bara svona filtteppi þar fyrir.  Ekki sérstaklega sniðugt þegar maður er með tvo brjálaða voffa sem eru hlaupandi út og inn.

Read the rest of this entry »

Nýr aðdáandi

Posted in Blogg on March 22nd, 2007

Við erum komnar með litla vinkonu hérna í næsta húsi.  Hún er dóttir nágranna okkar og er 4 ára.  Hún kom yfir í gær til okkar og fékk að leika sér og teikna og svona, rosa gaman.  Svo var bankað hjá okkur í morgun og þá var hún mætt aftur með mömmu sinni sem var frekar afsakandi á svipinn.  Hún sagði að litla hefði vakið hana klukkan sex í morgun og viljað fara í heimsókn til “mine veninder” hehehe.

Read the rest of this entry »

Svona eru símaklefarnir í sveitinni :P:P

Posted in Blogg on March 21st, 2007

Rólegur dagur

Posted in H&R on March 21st, 2007

Dagurinn í dag er búinn að vera frekar rólegur, enda erum við eitthvað voðalega þreyttar þessa dagana - I wonder why… :P  Ég verð að reyna að vera duglegri á morgun því að þá er stefnan að byrja á að leggja parket í stofunni.

Read the rest of this entry »

Nýjar myndir

Posted in Blogg on March 20th, 2007

Þar sem Arnheiður var svo indæl að senda mér myndir frá því á sunnudaginn, þá er ég nú búin að setja þær inn á myndasíðuna okkar.

Endilega kíkið!

Stuð!

Svona var nú gaman!

Komin heim í sveitina :-)

Posted in H&R on March 20th, 2007

Þá er maður kominn aftur heim í sveitina til krílanna.  Kristín Rós var svo indæl að taka að sér að skila íbúðinni í gær fyrir okkur þannig að nú er þeim kafla lokið hjá okkur.  Ég keyrði heim seint á sunnudagskvöldinu og lenti í brjáluðu roki og haglél þegar ég var að nálgast Sønderborg. 

Read the rest of this entry »

Erfiður dagur

Posted in Blogg on March 18th, 2007

Þessi hreingerning og málningarvinna ætlar engan endi að taka virðist vera.  Það var samt vel tekið til hendinni í gær, milli þess sem okkur Arnheiði var boðið í rjómavöfflur hjá Árna, Kristínu og Sveini Agli og svaka fínan kvöldmat hjá Ingu og Adda.

Read the rest of this entry »

Ekki búið ennþá!

Posted in Flutningur on March 17th, 2007

Nei það tókst ekki að klára þetta í dag eins og ég var svo bjartsýn að halda.  Konan mín segir að ég sé svo óraunsæ :P  En nú er þetta NÆSTUM ÞVÍ að verða komið!  Við Arnheiður vorum frekar lengi að komast í gang í morgun og ákváðum að byrja á því að vesenast aðeins á bílnum.

Read the rest of this entry »

Hetjur gærdagsins :P

Posted in Flutningur on March 16th, 2007

Hetjur gærdagsins

Púl og strit

Posted in Flutningur on March 15th, 2007

Jæja þá er þessi dagur komin að kveldi og ég er bara ansi sátt við árangur dagsins.  Íbúðin er ekki búin, en það náðist samt alveg hellingur og það var líka bara rosa gaman hjá okkur.

Read the rest of this entry »

Lokatörnin! HJÁLP ÓSKAST!!

Posted in Flutningur on March 14th, 2007

Ég (Rakel) er komin í bæinn til að ganga frá íbúðinni okkar á Kagså.  Ég brunaði í bæinn á nýjum mettíma - 2½ tíma (Sønderborg - København) ehemm… smá hraðakstur í gangi.  Og nú er málið að rumpa því af að þrífa íbúðina hérna og mála.  Hún Arnheiður er enn og aftur svo elskuleg að nenna að hjálpa mér við þetta basl (eða eins og hún segir: hún nennir þessu ekki en gerir það samt :P)

  Read the rest of this entry »

Ekkert net!

Posted in Blogg on March 10th, 2007

Við erum ekki ennþá komnar með internettengingu - vildi bara láta vita af því.  Þannig að það koma engar myndir hingað inn strax eins og við höfðum lofað, því miður:s  En samkvæmt nýjustu upplýsingum, þá á tengingin að komast í lag á mánudaginn - og þá eru aðeins liðnar 6 vikur frá því að við pöntuðum netið!  Þessir Danir……:Þ

Kveðja,

Hanna Sif:)

Við erum á lífi

Posted in Blogg on March 7th, 2007

Ég ætlaði bara að setja inn stutt skilaboð um að við erum á lífi - búnar að flytja í sveitasæluna og erum alveg rosalega ánægðar með það.  Hundarnir eru komnir með stóran garð að hlaupa í og þetta er bara algjör sæla.  Við fáum netið hérna á morgun þannig að þá set ég væntanlega inn einhverjar myndir og skemmtilegt.

Hilsen
Rakel