My Weather

  • Sønderborg
  • Cloud and Visibility OK
  • Temperature: 16°C
  • Humidity: 67.5%
  • Wind: E at 30 km/h
  • Dew Point: 10°C
  • Visibility: 10km
  • Clouds: Cloud and Visibility OK
  • Barometer: 1012 hPa
  • Sunrise: 4:39 am GMT
  • Sunset: 5:57 pm GMT

Scorpion - Still loving you

Kansas - Carry On Wayward Son

Flott skegg!

Rolling Stones - Paint It Black

Jagger hrukkulaus??

Archive for January, 2007

Göngutúr í gær

Posted in Blogg on January 28th, 2007

Við krílin fórum í labbitúr í gær í snjónum og það var rosa stuð :P

Vídeó

Niðurtalning hafin…

Posted in Blogg on January 27th, 2007

Ég sé ekki betur en að ég hafi gleymt að skrifa hvenær ég á að byrja í nýju vinnunni, en það er þann 10.apríl sem stóra stundin rennur upp:)  Skv minni talningu eru það 72 dagar ;)

Read the rest of this entry »

Gråsten

Posted in Blogg on January 27th, 2007

Við (aðallega Hanna Sif samt) erum aðeins búnar að vera að kíkja á upplýsingar um Gråsten á netinu.  Ég hef komið þarna þrisvar sinnum í atvinnuviðtöl og stoppað stutt (samt litist vel á bæinn) en Hanna Sif hefur aldrei komið þarna. Read the rest of this entry »

Hyper-dagur!

Posted in Blogg on January 25th, 2007

Við erum ekki ennþá komnar niður á jörðina eftir gærdaginn.  Ég svaf frekar lítið í nótt vegna spenning og það sama gilti víst um Hönnu Sif ;-)  Ég held meira að segja að voffarnir séu eitthvað spenntir líka :P Read the rest of this entry »

Stórfrétt!!!

Posted in Blogg on January 24th, 2007

Ég fékk símtal seinnipartinn sem reyndist mjög ánægjulegt.   Ég er komin með NÝJA VINNU!!! :) :) :) :) Read the rest of this entry »

Ííííííískalt!

Posted in Blogg on January 23rd, 2007

Maður er greinilega orðinn of góðu vanur hérna í útlandinu.  Það er búið að vera frost hérna í dag og við erum bara búnar að vera að krókna!  Við voffarnir fórum í morgungöngutúrinn okkar í morgun en hann var frekar snubbóttur þar sem okkur var öllum frekar kalt :s Read the rest of this entry »

Snjókoma!

Posted in Blogg on January 22nd, 2007

Jæja, það var pínu sjokk að keyra í vinnuna í morgun, snjókoma og ég veit ekki hvað!  Ég sem hélt að það væri búið að aflýsa vetrinum hérna í DK en það virðist ekki hafa verið alveg rétt.  Ég lagði tímanlega af stað í vinnuna og það gekk vel til að byrja með, en lokaspottinn tók rúmar 20 mínútur í staðinn fyrir tæpar 10! Read the rest of this entry »

Hvíldardagurinn ekki haldinn heilagur!

Posted in Blogg on January 21st, 2007

Ég var í heimsókn hjá unga herranum í KK64 í gærkvöldi.  Við vorum voða góðir vinir til að byrja með en svo þegar lillemann varð þreyttur var hann ekki alveg sáttur við að hafa ekki mömmu sína og pabba hjá sér.  Read the rest of this entry »

Helgarfrí

Posted in Blogg on January 20th, 2007

Þá er komið helgarfrí, guði sé lof.  Það er alltaf yndislegt að fá smá frí frá vinnunni og geta verið heima hjá frúnni og krílunum mínum.  Að vísu er Lúlli svo vanafastur að hann byrjar alltaf að reyna að vekja mig kl. 7, því þá fer hann vanalega út að pissa.  Read the rest of this entry »

Enn eitt atvinnuviðtalið búið

Posted in Blogg on January 16th, 2007

Í dag fór ég til Gråsten í enn eitt atvinnuviðtalið.  Þetta var önnur umferð hjá þessu fyrirtæki og við erum þrjú sem ennþá koma til greina, þannig að það eru 33,33% líkur á að ég fái vinnuna (hljómar þetta ekki ágætlega). 
Read the rest of this entry »

Dragshow!

Posted in Skemmtun on January 13th, 2007

Jæja haldiði ekki bara að mín hafi skellt sér í bæinn í gærkvöldi (föstudagskv.)!  Ég  fór með honum Goða vin mínum sem er að vinna með mér og vini hans sem heitir Örn. Planið var upprunalega að Hanna Sif færi með en vegna anna varð hún því miður að vera heima. 
Read the rest of this entry »

Vikan hálfnuð - halvvejs igennem ugen

Posted in Blogg on January 10th, 2007

Jæja, við erum búnar að fá fullt af heimsóknum á síðuna en ekki eitt einasta komment!  Eru allir svona feimnir eða hvað?

Ég fékk annars ekki þessa vinnu þarna  eins og ég hafði vonast eftir :-(  En það koma svosem aðrir sjensar eftir þennan. 

Mest lítið í fréttum hérna - bara nóg að gera og litlu krílin okkar alltaf jafn miklir prakkarar;-)

Snúlludúlla

Fyrsta sinn

Posted in Blogg on January 7th, 2007

Jæja, við ætlum að testa þessa blogguppsetningu og ef hún virkar vel ætlum við að setja hana fast inn á www.hafdal.dk domain-ið okkar.

Við erum líka að testa nýja síðu fyrir myndirnar okkar, http://hafdal.smugmug.com/, sem hefur upp upp á marga möguleika að bjóða og virkar mjög spennandi - indtil videre ;-)

Búin að setja inn myndir úr brúðkaupinu okkar, ásamt mörgum öðrum myndum

Annars er það helst hjá okkur að frétta að ég fæ að vita á morgun (!!) hvort að ég fæ vinnu á Sønderjylland, hjá fyrirtæki sem framleiðir landbúnaðarvélar og er staðsett í Sønderborg.  Ef það hefst ekki, þá er ég að fara í aðra umferð viðtala hjá fyrirtæki sem er í Gråsten og framleiðir ensím fyrir mjólkurvörur (jógúrt og þ.h).  Þannig að það er hellingur í gangi, bara spurning hjá hvaða fyrirtæki ég enda :P

Ég er annars í fullum gangi með að setja myndir inn á nýju myndasíðuna þannig að það er um að gera að kíkja á hana, það getur verið að einhverjar síður verði varðar með aðgangsorði, en ef að þið komist ekki inn þá er bara að senda okkur meil og við sendum ykkur aðgangsorðið ;-)