My Weather

  • Sønderborg
  • Cloud and Visibility OK
  • Temperature: 16°C
  • Humidity: 67.5%
  • Wind: E at 30 km/h
  • Dew Point: 10°C
  • Visibility: 10km
  • Clouds: Cloud and Visibility OK
  • Barometer: 1012 hPa
  • Sunrise: 4:39 am GMT
  • Sunset: 5:57 pm GMT

Scorpion - Still loving you

Kansas - Carry On Wayward Son

Flott skegg!

Rolling Stones - Paint It Black

Jagger hrukkulaus??

Archive for the 'H&R' Category

Hmmm….

Posted in H&R on April 3rd, 2009

Já við erum víst með bloggsíðu…..Facebook hefur alveg einokað okkur síðustu mánuðina, sorry! Reynum að fara að bæta úr þessu;-) En síðan verður samt flutt á aðra slóð fljótlega, látum vita um leið og það gerist :wink_ee:

Prófsvör - nauðsynlegur lestur!!

Posted in H&R on July 31st, 2008

1. Ancient Egypt was inhabited by mummies and they all wrote in hydraulics.They lived in the Sarah Dessert and traveled by Camelot. The climate of the Sarah is such that the inhabitants have to live elsewhere.

2. The Bible is full of interesting caricatures. In the first book of the Bible,Guinessis, Adam and Eve were created from an apple tree. One of their children,Cain, asked, “Am I my brother’s son?”

3. Moses led the Hebrew slaves to the Red Sea, where they made unleavened bread which is bread made without any ingredients. Moses went up on Mount Cyanide to get the ten commandments. He died before he ever reached Canada.

4. Solomom had three hundred wives and seven hundred porcupines.

5. The Greeks were a highly sculptured people, and without them we wouldn’t have history. The Greeks also had myths. A myth is a female moth.

6. Actually, Homer was not written by Homer but by another man of that name.

7. Socrates was a famous Greek teacher who went around giving people advice. They killed him. Socrates died from an overdose of wedlock. After his death, his career suffered a dramatic decline.

8. In the Olympic games, Greeks ran races, jumped, hurled the biscuits, and threw the java.

9. Eventually, the Romans conquered the Greeks. History calls people Romans because they never stayed in one place for very long.

10. Julius Caesar extinguished himself on the battlefields of Gaul. The Ides of March murdered him because they thought he was going to be made king. Dying, he gasped out: “Tee hee, Brutus.”

11. Nero was a cruel tyranny who would torture his subjects by playing the fiddle to them.

12. Joan of Arc was burnt to a steak and was cannonized by Bernard Shaw. Finally Magna Carta provided that no man should be hanged twice for the same offense.

13. In midevil times most people were alliterate. The greatest writer of the futile ages was Chaucer, who wrote many poems and verses and also wrote literature.

14. Another story was William Tell, who shot an arrow through an apple while standing on his son’s head.

15. Queen Elizabeth was the “Virgin Queen.” As a queen she was a success. When she exposed herself before her troops they all shouted “hurrah.”

16. It was an age of great inventions and discoveries. Gutenberg invented removable type and the Bible. Another important invention was the circulation of blood. Sir Walter Raleigh is a historical figure because he invented cigarettes and started smoking. And Sir Francis Drake circumcised the world with a 100 foot clipper.

17. The greatest writer of the Renaissance was William Shakespeare. He was born in the year 1564, supposedly on his birthday. He never made much money and is famous only because of his plays. He wrote tragedies,comedies, and hysterectomies, all in Islamic pentameter. Romeo and Juliet are an example of a heroic couplet. Romeo’s last wish was to be laid by Juliet.

18. Writing at the same time as Shakespeare was Miguel Cervantes. He wrote Donkey Hote. The next great author was John Milton. Milton wrote Paradise Lost. Then his wife died and he wrote Paradise Regained.

19. During the Renaissance America began. Christopher Columbus was a great navigator who discovered America while cursing about the Atlantic. His ships were called the Nina, the Pinta, and the Santa Fe.

20. Later, the Pilgrims crossed the ocean, and this was called Pilgrim’s Progress. The winter of 1620 was a hard one for the settlers. Many people died and many babies were born. Captain John Smith was responsible for all this.

21. One of the causes of the Revolutionary War was the English put tacks in their tea. Also, the colonists would send their parcels through the post without stamps. Finally the colonists won the War and no longer had to pay for taxis. Delegates from the original 13 states formed the Contented Congress. Thomas Jefferson, a Virgin, and Benjamin Franklin were two singers of the Declaration of Independence. Franklin discovered electricity by rubbing two cats backwards and declared, “A horse divided against itself cannot stand.”. Franklin died in 1790 and is still dead.

22. Soon the Constitution of the United States was adopted to secure domestic hostility. Under the constitution the people enjoyed the right to keep bare arms.

23. Abraham Lincoln became America’s greatest Precedent. Lincoln’s mother died in infancy, and he was born in a log cabin which he built with his own hands. Abraham Lincoln freed the slaves by signing the Emasculation Proclamation. On the night of April 14, 1865, Lincoln went to the theater and got shot in his seat by one of the actors in a moving picture show. The believed assinator was John Wilkes Booth, a supposedly insane actor. This ruined Booth’s career.

24. Meanwhile in Europe, the enlightenment was a reasonable time. Voltaire invented electricity and also wrote a book called Candy.

25. Gravity was invented by Issac Walton. It is chiefly noticeable in the autumn when the apples are falling off the trees.

26. Johann Bach wrote a great many musical compositions and had a large number of children. In between he practiced on an old spinster which he kept up in his attic. Bach died from 1750 to the present. Bach was the most famous composer in the world and so was Handel. Handel was half German half Italian and half English. He was very large.

27. Beethoven wrote music even though he was deaf. He was so deaf he wrote loud music. He took long walks in the forest even when everyone was calling for him. Beethoven expired in 1827 and later died for this.

28. The French Revolution was accomplished before it happened and catapulted into Napoleon. Napoleon wanted an heir to inherit his power, but since Josephine was a baroness, she couldn’t have any children.

29. The sun never set on the British Empire because the British Empire is In the East and the sun sets in the West.

30. Queen Victoria was the longest queen. She sat on a thorn for 63 years. She was a moral woman who practiced virtue. Her death was the final event which ended her reign.

31. The nineteenth century was a time of a great many thoughts and inventions. People stopped reproducing by hand and started reproducing by machine. The invention of the steamboat caused a network of river to spring up. Cyrus McCormick invented the McCormick raper, which did the work of a hundred men.

32. Louis Pasteur discovered a cure for rabbis. Charles Darwin was a naturalist who wrote the Organ of the Species. Madman Curie discovered radio. And Karl Marx became one of the Marx brothers.

33. The First World War, caused by the assignation of the Arch-Duck by an anahist, ushered in a new error in the anals of human history.

Fengið af síðunni: http://listverse.com/humor/33-funny-exam-answers/

Helga mætt í heimsókn

Posted in H&R on July 24th, 2008

Þá er hún Helga mætt í sveitina. Hún lenti í Billund á mánudeginum og við voffarnir fórum að sækja hana. Við kíktum við í vinnunni minni á leiðinni heim þannig að hún gæti séð aðeins hvar ég er að vinna, svo fórum við í búð og svo loksins heim.

Helga kom sko færandi hendi með HELLING af íslenskum mat og nammi, slátri, sviðasultu, harðfisk, bjúgum, lakkrís, súkkulaði og ég veit ekki hvað!! Við höfðum bara aldrei séð annað eins og urðum alveg svakalega ánægðar með þetta :-)

Fyrsta máltíðin hjá henni Helgu greyinu, þegar hún loksins var komin til Danmerkur voru svo íslenskar SS pulsur hehehe. Ég bara gat ekki beðið þannig að þær kellurnar fengu að njóa þessa með mín ;-)

Þriðjudaginn tókum við bara rólega, spjölluðum saman um daginn og veginn og horfðum á sjónvarpið og DVD myndir - þvílíkt næs!!!

Í gær var svo sofið hressilega frameftir, alltaf þegar ein okkar vaknaði þá voru hinar nýsofnaðar þannig að þá fór viðkomandi bara aftur að sofa og svona gekk þetta alveg fram að hádegi! En þetta var nú samt alveg ágætt hehe. Svo vorum við í einhverjum vafa um hver dagskráin ætti að vera en á endanum var ákveðið að halda í Legoland. Og þangað keyrðum við af stað um hálf tvö - vorum komnar í Legoland um hálf fjögur, sem var alveg ágætt því þá voru öll öskrandi smákrílin farin heim með foreldrum sínum (eða svona næstum því öll hehe) og það var aðeins bærilegra að labba um.

Hitinn var orðinn alveg ágætlega mikill en Helga var búin að smyrja sig inn í sólarvörn þannig að hún var amk seif. Helga var orðin pínu rauð samt þegar við komum heim og ég var búin að taka smá lit ;-)

Á leiðinni heim stoppuðum við á Burger King og nú er mér búið að takast að gera Helgu húkked á Burger King hehe. Enda eru það bara bestu borgararnir :-)

Í dag erum við líka búnar að vera frekar rólegar, komumst í gang uppúr hádegi, og vorum eitthvað að spá í að skreppa til Þýskalands en ákváðum svo að fara bara inn í Sönderborg. Um hádegið var hitinn kominn yfir 26 gráður og við Helga vorum alveg að farast úr hita og það lagaðist ekki eftir því sem leið á daginn. Við sáum hitamæli inni í Sönderborg sem sagði að það væri 35 stiga hiti!! Og við vorum með allar rúður niðri til að ná andanum, Helga var með nefið út um gluggann eins og hundarnir hehe. Eftir smá búðarrölt í Sönderborg (reyndum samt að takmarka það vegna hitans) komum við svo við á kínastaðnum og pöntuðum take-away og sitjum núna og horfum á dvd og étum kínamat :-) Rosalega huggulegt :-)))

Fórum í heimsókn til ÁKSE á laugardaginn og tókum myndir af sætum strák

Posted in H&R on July 15th, 2008

Sætur kall

WWW.LIVERPOOLSTORE.DK!!!

Posted in H&R on July 14th, 2008

Jæja nú erum við orðnar svo flottar á því að við erum komnar með vefbúð!! Við verðum semsagt að selja vörur frá beint Liverpool FC (sem er enskur fótboltaklúbbur fyrir þá sem ekki þekkja til) :clap_tb:

Við fórum til Köben á laugardaginn að sækja lagerinn (komum heim í gær, sunnudag) og það var sko TROÐIÐ í bílinn til að við kæmum öllu með. Og þar að auki þá vorum við líka með kerru sem var alveg stútfull. Voffagreyin þurftu að vera á gólfinu frammí hjá Hönnu Sif til að komast með til baka og svo voru sætin afturí lögð niður og bara pakkað upp í loft!! Þegar skottinu var lokað þurftum við að vera þrjú til að ná að halda við og skella hurðinni þannig að allt hryndi ekki út heheh :jittery_tb:

Svo þegar heim var komið, tók örugglega hátt í klukkutíma að tæma bílinn því að það þurfti náttúrulega að leggja þetta allt slétt út þannig að þetta væri ekki allt í krumpi. Og núna er stofan bara FULL af dóti. Endalaust magn af stuttermabolum, stuttbuxum, jökkum, böngsum, músamottum, bollum, derhúfum, lyklakippum, barnafötum, sokkum, pelum, treflum, bílaskrauti og ég veit ekki hvað!! (set inn myndir á eftir þegar ég kem heim). Sem betur fer á ég konu sem er með skipulagningaræði þannig að ég er í góðum málum :wub_tb: Það er sko enginn sem er betri en hún í að raða og skipuleggja svona hluti!!!

Síðan er annars niðri í augnablikinu á meðan að við erum að koma öllu í gang en ef þið kíkið á www.liverpoolstore.dk þá getiði allavegana séð að fyrirtækið okkar heitir Hafdal I/S :clap_tb: Og við erum bara geðveikt spenntar og vonandi á þetta eftir að ganga vel!!!!!

Og svona að lokum vil ég segja: Elsku ástin mín, þú ert yndisleg! Takk fyrir að styðja mig alltaf og vera svona góð við mig :wub_tb: Ég elska þig :wub_tb:

Snákur í paradís

Posted in H&R on May 28th, 2008

Eftir að hafa sloppið við það að slá garðinn í nokkra daga vegna þurrks, kom að því að það rigndi í fyrradag og grasið tók þvílíkan kipp. Þannig að það var ekkert annað að gera en að slá garðinn og ég dreif mig bara í það. Í fyrsta hringnum var ég að koma að einu blómabeðinu og sé þá snák renna upp úr grasinu, yfir kantinn á beðinu og upp í blómabeðið. Þar hvarf hann svo. Ég skrækti eins og stunginn grís og kallaði á Hönnu Sif sem kom hlaupandi alveg í sjokki. Mig dauðlangaði að ná honum og dreif mig að finna hanska því mig langaði ekki að vera berhent að meðhöndla hann, en mér tókst því miður ekki að finna hann aftur :-(

En núna kemst ég víst ekki hjá því að fara að hreinsa til í beðinu, því Hanna Sif varð ekki hrifin af því að heyra af snáknum. Hún kvartaði reyndar undan því að ég hefði hrætt hana með því að vera að skrækja svona, en ég lofaði því að næst myndi ég bara skrækja ef að ég hefði klippt af mér tærnar með sláttuvélinni eða álíka, amk yrði nóg af blóði ;-)

Annars er bara allt rólegt, dáldítið rok í dag, en þurrt. Svo spáir víst 25 stiga hita um helgina, en þá erum við að fara tónleika!! Rock on! (eða þannig…)

Loksins hægt að vinna eitthvað

Posted in H&R on May 15th, 2008

Við komum loksins einhverju í verk í dag, helgin fór að mestu leyti í að sóla sig og svamla í lauginni. Hitinn fór upp í 31°C í skugga á sunnudeginum og það segir sig sjálft að það er ekki hægt að vera að vinna í þeim hita hehe. Ég gerði amk heiðarlega tilraun til að moka holu fyrir síðasta girðingarstaurinn, en komst bara hálfa leið, gafst upp og fór í sundlaugina :P

En í dag þá fór kellan mín í að mála grindverkið á meðan ég fór í að saga ofan af staurunum og árangurinn má sjá hér að neðan. Svo eru fleiri myndir á myndasíðunni okkar, m.a. myndasería af Dúllu “Banks” KNTP - eða semsagt Kegnæs Next Top Model :-)

Sundlaugin komin!

Posted in H&R on May 10th, 2008

Eftir hitann síðustu daga vorum við farnar að örvænta, sundlaugin ekki væntanleg fyrr en á morgun og helgin á víst að vera alveg þokkalega heit (spáin segir um 25°C). Það var svo ekki til að bæta það að hitinn fór upp í 27,5°C í gær (í skugga) og m.a.s. Hanna Sif var hætt að geta legið í sólbaði vegna hita. Þannig að ég ákvað að fara út í búð og spyrja hvort að sundlaugin væri nokkuð komin og viti menn - hún var barasta komin!!!

Ég brunaði heim með hana og svo var bara farið í að pumpa og láta renna vatn í hana. Sem betur fer fjárfestum við um daginn í rafmagnspumpu því ég svitnaði bara við að sitja og halda á henni - veit ekki hvernig þetta hefði verið ef ég hefði þurft að fara að pumpa sjálf í hehe. Svo endaði með því að pumpufjandinn bræddi úr sér! Það var náttúrulega ekki mikil loftkæling og þrátt fyrir að ég reyndi að halda henni í skugga þá varð hún alveg logandi heit. En ég náði amk að blása upp það sem ég þurfti. Þetta er dálítið stór sundlaug - stærri en ég átti von á, þrátt fyrir að hún sé helmingi minni en sú sem við vorum með í fyrrasumar. Ætli maður minnki ekki ennþá við sig næsta sumar (ef frúin samþykkir það). Við náðum nú ekki að klára að láta renna í hana þar sem við þurftum að fara í bæinn að versla aðeins fyrir helgina, en þetta gengur ágætlega enn sem komið er.

Planið fyrir helgina er annars frekar þéttskipað, sem betur fer er þetta löng helgi og ég býð nú ekki í þetta ef að það er 25 stiga hiti. Þá verður nú ekki gaman að vera að stinga upp og hamast! Ætli maður verði ekki bara eins og spánverjarnir og fái sér siestu í mesta hitanum hehehe.


Pallurinn tilbúinn

Posted in H&R on May 6th, 2008

Hún konan mín er búin að hafa yfirumsjón með fínpússun á pallinum og eftir mikla þrif og málningarvinnu er pallurinn loksins búinn að fá ok-stimplinn og við byrjaðar að punta aðeins upp á hann. Þetta er orðið rosalega kósí og við erum búnar að vígja hann með því að grilla og borða úti á honum í gær ;-)



Kanturinn að verða búinn

Posted in H&R on May 6th, 2008

Ég stóðst ekki mátið að steypa nokkra kantsteina í viðbót upp við grindverkið. Nú eru ekki margir eftir og þetta er bara að verða asskoti flott :-)


Blóm í garðinn

Posted in H&R on May 6th, 2008

Við fórum og keyptum tvenns konar blómategundir í dag til að punta aðeins upp á palllinn og blómakerið í garðinum. Við keyptum eina stóra hortensíu sem á að fara í hornið á pallinum og svo keyptum við blóm sem heita “exacum affine” eða persian violet og þær eiga að fara í blómakerið. Þetta hlýtur að verða voða fínt :-)

Hortensían stóra

Persnesku fjólurnar

Svo er eplatréið að komast í fullan blóma, það hljóta að koma nokkur epli á það í ár :-)

Enn einn frábær dagur!

Posted in H&R on May 3rd, 2008

Þá er enn einn frábær dagur búinn. Við byrjuðum nú frekar rólega, ég skrapp í bakaríið rétt fyrir 8 og við fengum okkur nýbökuð rúnstykki í morgunkaffi…nammi namm! Svo horfðum við á eina mynd (fórum á Blockbuster í gærkvöldi) sem ég var nú ekkert allt of hrifin af. Minnir að hún heiti Match Point og er leikstýrð af Woody Allen. Ég er ekki mikið fyrir svona myndir þar sem maður bíður bara eftir því að allt fari í háaloft, en við spóluðum bara yfir leiðinlegu kaflana og þá reddaðist þetta ;-)

Uppúr hádegi fórum við svo út. Ég fór í að steypa kantinn á innkeyrslunni (þar sem maður keyrir inn í innkeyrsluna) og Hanna Sif fór að mála og liggja í sólbaði ;-) Hitinn fór í ca 20 gráður í skugga þannig að það varð frekar heitt að vera að púla í steypuvinnu, en þetta hafðist allt á endanum. Þar sem að við erum búnar að vera að keyra upp í innkeyrsluna á lausar hellur, þá þurfti ég að taka slatta af þeim upp, hreinsa sandinn af þeim og svo slétta og leggja þær aftur. Annars hefði fúgubreiddin verið allt of stór og misjöfn og það gengur náttúrulega ekki ;-)

Eftir að ég var búin að klára alla steypupokana sem ég keypti í gær (6 stykki), þá var klukkan nú orðin frekar margt og eiginlega kominn tími á kvöldmat, en ég stóðst ekki freistinguna og sagaði ofan af einum stólpa ;-) Mig langaði bara til að sjá hversu vel það myndi ganga nefninlega ;-)
Það gekk bara vel og þegar ég var búin að því, kveikti ég upp í grillinu og skellti kartöflunum á. Meðan þær fengu að hitna aðeins, rúllaði ég svo yfir gólfið á pallinum, síðustu umferðina!! Jei!! Svo fór svínakjötið á grillið (nei engar pulsur í þetta skiptið) og þetta bragaðist bara svona líka frábærlega!!

Konan mín missti sig aðeins í málningarvinnunni, þannig að hún fór bara beint í háttinn eftir matinn og ætli það fari ekki að styttast háttatímann hjá mér líka :-)
Fleiri myndir á myndasíðunni (eins og alltaf!).





Og Lúlli fékk sér smá bjór til að kæla sig niður eftir erfiðið

Posted in H&R on May 1st, 2008

Og svo var farið í að mála pallinn

Posted in H&R on May 1st, 2008




Svo var farið í að mála grindverkið

Posted in H&R on May 1st, 2008

Já svo kláraðist steypan, en þar sem mig vantaði ekki verkefni var það allt í lagi. Ég fór í að mála grindverkið, þeas hliðarnar fyrir neðan hurðina.

Þröskuldurinn steyptur og fleiri kantsteinar

Posted in H&R on May 1st, 2008

Dagurinn var tekinn snemma hér í sveitinni og fyrst var farið í innkeyrsluna, þröskuldurinn steyptur og svo hélt ég áfram með að steypa kantsteina upp hallann. Þetta er allt að koma og verður bara flottara og flottara :-)

Innkeyrslan heldur áfram

Posted in H&R on April 30th, 2008

Mér tókst loksins að klára að skera í götin fram að hurðinni, það er búið að taka langan langan tíma, en núna seinni partinn tók ég bara skorpu í þessu og rumpaði þessu af!! :-)

Fullt af myndum á myndasíðunni!

Sundlaugin á leiðinni

Posted in H&R on April 29th, 2008

Þrátt fyrir að það sé rigning í dag, erum við fullar af bjartsýni fyrir sumarið og létum vaða að panta sundlaug :-) Hún er helmingi minni en í fyrra, en ætti að vera alveg nógu stór (þá tekur líka ekki jafn rosalega langan tíma að láta renna í hana!).
Hverjir ætla að mæta í sundlaugarpartí í sumar?? ;-)))
Sundlaugin í ár

Breyting

Posted in H&R on April 28th, 2008

Þetta er pallurinn 2. júní í fyrra:

Og þetta er pallurinn í gær:

Smávegis gert í innkeyrslunni

Posted in H&R on April 27th, 2008

Mér tókst að komast aðeins í innkeyrsluna um helgina, inn á milli allra hinna verkanna sem við vorum með í gangi; mála pallinn, færa skúrinn, koma snúrunum upp, klippa runna og taka til! Nóg að gera!! Ég steypti semsagt endann hjá póstkassanum, nánar tiltekið kantsteinana, þannig að nú er sá endi eiginlega alveg búinn, mig vantaði reyndar aðeins meiri steypu til að ná alveg upp kantinn, en það kemur í næstu umferð. Þetta munar allavegana alveg helling!


Pallurinn málaður!

Posted in H&R on April 27th, 2008

Konan mín er búin að rosalega dugleg um helgina. Fyrst smúlaði hún allan pallinn í gær, og þreif hann hátt og lágt. Svo hjálpuðumst við að við að mála gólfið og nokkra stólpana þannig að þetta er að verða rosalega flott. Því miður kláraðist málningin en það er sko greinilega hægt að sjá muninn!!

Snúrur komnar upp

Posted in H&R on April 27th, 2008

Þá er ég búin að skella upp alvöru snúrum fyrir okkur kellingarnar! Við keyptum svona plastsnúrur í fyrre sem eru búnar að vera að gera mig geðveika og hafa lítið sem ekkert verið notaðar þessvegna. En núna erum við komnar með ALVÖRU snúrur, þannig að nú er bara um að gera að vera dugleg að hengja þvottinn út ;-)

Læknisferð

Posted in H&R on April 26th, 2008

Ég fór til læknis í gær til að fá mína árlegu ofnæmissprautu. Nú þegar vorið er að koma, fylgir því miður frjókornaofni þannig að ég er með endalaust “kvef”. Ég fann að núna eftir hlýindin síðustu daga þá var ofnæmið farið að verða ansi slæmt, þó svo að ég sé að taka pillur og augndropa, þannig að ég pantaði mér tíma og fékk tíma hjá einhverjum læknanema sem er tímabundið á staðnum.

Ég mætti á svæðið og var vísað inn á stofu af læknanemanum (sem ég svo komst að, að væri 28 ára!). “Já þú ætlar semsagt að fá svona ofnæmissprautu”, “já endilega” sagði ég. Hann varð pínu vandræðalegur og svona hálf afsakandi benti hann svona á hliðina á rassinum og sagði “eh..já…ég sprauta venjulega þarna“. Ég sagði bara jájá! svolítið hressilega svo hann færi nú ekki alveg í kleinu strákgreyið. Svo settumst við niður og ég spurði hann “getur verið að það sé fólk sem þurfi að fá þessa sprautu oftar en einu sinni á ári?” (af því að mér skildist það af hjúkkunni þegar ég hringdi að þau vildu ekki gefa fólki þessa sprautu oft og því væri beðið eins lengi og hægt væri með að gefa hana). Hann var eitthvað að gramsa í skúffunni að leita að sprautu og nál, leit svo upp og sagði “ha, ég veit það ekki, ég sprauta bara fólk“. Ég átti pínu bágt með mig en náði að halda aftur að mér að fara að hlæja. Hann hélt áfram að róta með nálarnar og var kominn með tvær eða þrjár mismunandi stærðir en var alveg miður sín yfir því hvað þær voru stórar. “Þetta eru algjörar hrossanálar!!“. Mér fannst ég verða að róa hann svo ég sagði “já ég hlýt nú að lifa þetta af, ég finn örugglega ekkert fyrir þessu” en varð samt pínu “ó ó, afhverju sagði ég að það væri í lagi að fara til læknanema!!”

“Já en þær eru samt alveg rosalega stórar!” sagði hann aftur og ég bara kyngdi og ákvað að bara brosa pínu nervust til hans, svona til að telja kjark í hann…eheee! Svo stóð hann upp og horfði á mig, þannig að ég ákvað að standa upp og bara kippa niður buxunum öðru megin svo færi nú ekki að vandræðast með að biðja mig um að taka buxurnar niður. Hann fór að ýta allsstaðar á mjaðmabeinið og ég hugsaði með mér “ekki ætlar hann að sprauta þessu inn í liðinn hjá mér!!” en svo sagði hann “ég ætla að sprauta hér!” og ýtti fast rétt fyrir neðan mjaðmabeinið. Ég sagði bara “allt í góðu!” og hann taldi niður í stunguna. Eitt augnablik hugsaði ég “ÁÁÁ þetta verður sárt!!!” og fór í smá paník en ákvað að bíta það í mig og reyna að vera hugrökk. Svo kom stungan…og ég fann varla fyrir henni, svo ég segi “iss þetta var nú ekki neitt, ég hef nú lent í verra en þessu”, svona til að láta honum líða betur. Þá segir hann “já þegar þú eignaðist barn??” “Huh!?!?!! Neinei! þegar það var rifin af mér nögl og deyfingin virkaði ekki”

Svo spjölluðum við aðeins saman, ég þakkaði fyrir mig og keyrði heim á leið….

Sunnudagur

Posted in H&R on April 21st, 2008

Við vorum svaka duglegar í gær (sunnudag). Byrjuðum á því að helluleggja fyrir framan hurðina, og svo var farið í að klippa runnana. Þeir eru orðnir frekar háir, enda ekki klipptir í fyrra og svo eru komnir svaka brómberjaþyrnirunnar inn í runnana þannig að þetta er ekki hættulaust ;-) Ég var búin að vera að væflast í einhverjum tröppum til að ná að klippa alveg ofan af toppnum, en svo fann ég upp á nýrri tækni. Ég kastaði mér bara inn í runnana með rafmagnsklippurnar og hamaðist svo eitthvað út í loftið. Þetta virkaði bara þrælvel, ég náði að klippa alveg helling af, og mun hraðar en þegar ég var að nota tröppurnar. Vandamálið kom bara í ljós eftirá. Ég var í stuttermabol og þegar ég kom inn þá sá ég að ég var öll rispuð og rifin eftir þyrnirunnana og greinarnar :-/ En ég á svo yndislega konu, sem bar á mig Íbúfen krem og kyssti svo á bágtið :-)

Hurðin komin í grindverkið!

Posted in H&R on April 20th, 2008

Ég fór og keypti hina lömina í hurðina (komst að því þegar ég ætlaði að setja hurðina upp að ég var með lamir fyrir sitthvora hliðina - eina hægra megin og eina vinstra megin) þannig að nú gat ég loksins skellt henni upp! Það kom mér á óvart hvað það breytti miklu þegar maður horfir inn innkeyrsluna, að hurðin sé komin. Nú þarf bara að klára að mála hana og svo skella spítunum upp á hinni hliðinni :-)


Alltaf eitthvað að gerast

Posted in H&R on April 16th, 2008

Það var verið að reka yfirmann minn þannig að ég á dálítið erfitt með að einbeita mér núna og datt í hug að blogga aðeins. Ég var að setja inn nýtt kerfi fyrir síðuna um daginn og m.a. sem ég get séð núna er ef fólk hefur komið inn á síðuna okkar frá Google og hvaða leitarorð það hefur notað inni á Google. Og það er eiginlega dáldið skondið að sjá hvað fólk er að leita að þegar það álpast inn á síðuna okkar. Hérna er smá listi yfir leitaratriði:
* Hjónabandsráðgjöf (hmmm??)
* Ryksuga sjálf
* Bjöllur 2 cm
* Lessur (að sjálfsögðu!)
* Hafdal
* Parketlögn
* Innkeyrsla
* Draumavélin
* Verkfræði brandarar
* Fylltar paprikur
* Gardínur
* Skólinn fordómar
* Hanna Sif blogg
* Gossip

Jahá, það er víst ekki hægt að segja að við séum ekki með fjölbreytta umræðu hérna á síðunni hehe.

Eigðu góðan dag og njóttu lífsins!

Óskar Þorgils Stefánsson

Posted in H&R on April 13th, 2008

Ég fékk þær fréttir í morgun þegar ég vaknaði að elskulegur afabróðir minn hann Óskar væri dáinn. Ég veit að hann afi minn tekur vel á móti honum hinumegin, ætli þeir sitji ekki núna og drekki morgunkaffi saman og spjalli um daginn og veginn eins og þeir gerðu alltaf.

Ég vil senda fjölskyldu hans mínar allra bestu kveðjur og vona að þau geti fundið huggun í öllum góðu minningunum sem hann skilur eftir sig.

Hérna eru þeir Óskar og afi saman (og amma að skenkja kaffið):
-

Germaní hír ví komm

Posted in H&R, Skemmtun on April 12th, 2008

Við skelltum okkur til Þýskalands í dag með Arnheiði og Dennis. Byrjuðum reyndar í Sönderborg, þar sem stefnan var sett á H&M þar sem Hanna Sif átti inneignarnótu sem hún vildi endilega nota. Það vildi svo heppilega til að klukkan var orðin 10 mínútur í 14 þegar við komum inn og búðin lokar kl. 14 á laugardögum. Þannig að Arnheiður og Hanna Sif höfðu ekki mikinn tíma til að skoða. Enda endaði það þannig að ég greip með mér einar buxur sem pössuðu akkúrat fyrir inneignarnótunni og Hanna Sif fékk meira að segja eina krónu í afgang! Segiði svo að maður kunni ekki að versla föt ;-) Það verður víst að fylgja sögunni að Hanna Sif náði ekki að versla sér neitt :p

Svo ákváðum við að halda áfram sem leið liggur til Þýskalands, nánar tiltekið Flensborgar. Þar keyrðum við beint í Gallerí (svaka fín verslunarmiðstöð) þar sem við kíktum í raftækjabúð og svo í frábæru ísbúðina (nei mig var ekki að dreyma:-)) ). Við Dennis fengum okkur rosalega góða og rosalega flotta ísrétti (var ég búin að segja að þetta var gott?), ég náði ekki einu sinni að klára minn ís því hann var svo stór!

Svo röltum við um Gallerí, Hanna Sif fann sér svaka fín sundföt og Arnheiður verslaði sér undirföt, á meðan að við Dennis þjáðumst þegjandi (svona næstum því). Við kíktum á allar 4 hæðirnar og svo var ákveðið að kíkja á Dionysos, grískan veitingastað sem við höfum farið á einu sinni með nágrönnum okkar.

Það var frekar margt fólk mætt þar í kvöldmat en við vorum það heppin að geta fengið borð eiginlega um leið. Matseðilinn var allur á þýsku þannig að nú var bara að reyna að rifja aðeins upp af þýskunni sem maður lærði í fjölbraut og stauta sig svo framúr þessu. Okkur tókst öllum að panta eitthvað gott - Hanna Sif var samt eiginlega hugrökkust (finnst mér amk). Hún pantaði sér rækjur…með augum og alles!! Frekar úlekkert fannst mér, en hún plokkaði þær sundur og saman og var bara komin með þvílíka tækni í þetta í lokin. Við fengum öll mjög góðan mat og aðalréttur (vel útilátinn) kostaði innan við 100 kr. Þannig að þetta var bara alveg ágætt :-)

Hanna Sif og rækjan

Eftir matinn var þreytan farin að læðast að, þannig að við brunuðum bara heim í kvöldsólinni :-)

P.s. Var að kíkja á heimasíðuna hjá veitingastaðnum, mæli endilega með því að þið prófið að lesa síðuna á ensku (smellið á enska fánann og þá kemur enska útgáfan upp). Ég veit ekki alveg hver hefur hjálpað þeim við þýðinguna frá þýsku yfir til ensku, en vúff…. Frekar góðar setningar þarna inni á milli:
Also for your children we find time with pleasure.” ??

Föstudagurinn langi….svona næstum

Posted in H&R on April 11th, 2008

Þetta er búinn að vera ansi langur dagur finnst mér, enda er ég á leiðinni upp í rúm núna. Maður er orðinn svo svakalega lélegur í að vaka frameftir svona á eldri árum :lol_ee:
Frúin er örugglega steinsofnuð núna og ég er í rauninni að vaka frameftir á mínum mælikvarða, þó svo að klukkan sé rétt rúmlega 9 að kveldi til. Venjulega fer ég að sofa uppúr 8 (já 8!) og svo vakna ég klukkan 5, það gefur svona ca 9 tíma svefn (ef ég tel rétt) og það er algjört lágmark fyrir mig! Ég reyni líka að bæta þennan “svefnskort” upp um helgar…svona aðeins :tongue_laugh_ee:

Hanna Sif fékk iðjuþjálfann sinn í heimsókn í dag og þær spjölluðu víst saman í 2 tíma, nóg að tala saman þar.

Ég stakk af úr vinnunni hálftíma fyrr en ég (m)átti :tongue_laugh_ee: kom við í búð og keypti í smá mexíkanska veislu og svo mallaði ég aðeins handa okkur þegar ég kom heim. Svo var bara horft á Supernatural í tímavís, þar til að “season” 1 var búið (og ég líka!).

Hrikalegt að horfa á svona spennuseríur, við þurftum stundum að spóla áfram bara til að geta haldið út spennuna :lol_ee: Algjörar kellingar!! :smile1_ee: :embarrassed_ee: En þetta eru bara ágætis þættir svosem, alveg ágætis afþreying.

Eftir allt þetta yfirnáttúrulega þá fór ég að dúlla mér í heimasíðunni, er búin að breyta aðeins til (og vonandi bæta), setti inn nýja linka (reynið að finna hverja hehe) og bætti inn þessu Youtube í hliðinni. Það er allt hægt í þessum heimasíðuheimi, maður þarf bara að vita hvar á að leita!

Svo byrjaði að rigna uppúr hádegi (ef ekki fyrr) og það er ennþá rigning núna. Svo á víst að vera smá rigning á morgun og brjáluð rigning á sunnudaginn :bigsurprise_ee: Ég skil bara ekki hvað þetta á að þýða. Ég var búin að plana að halda áfram með innkeyrsluna um helgina, enda búin að taka því rólega núna í vikunni. En ég get þó amk huggað mig við það að næsta helgi er löng helgi :tongue_wink_ee: :grin1_ee: :lol_ee:

Við þurfum að fá svona galla á Lúlla…

Posted in H&R on April 11th, 2008


mínus Bandaríska fánann.

Coca Cola :-)

Posted in H&R on April 11th, 2008

Góður dagur!

Posted in H&R, Húsið okkar on April 5th, 2008

Við erum búnar að vera rosa duglegar í dag. Nú er allur sandurinn farinn úr innkeyrslunni og búið að skera í eiginlega alla línuna fram að hurðinni. Allt að gerast hérna!

Árekstur

Posted in H&R on April 4th, 2008

po 0o = smá skilaboð frá Dúllu…
Það var keyrt á Hönnu Sif áðan, hún kom bara keyrandi eftir aðalvegi og svo kom bíll út af bensínstöð og keyrði í hliðina á bílnum. Hann náði að rispa næstum því alla bílstjórahliðina, mjög effektivt hjá honum…
Hönnu Sif brá frekar mikið (skiljanlega), en það verður að líða og bíða til að sjá hvort hún hefur fengið einhvern hnykk á sig.

Sykur

Posted in H&R on April 2nd, 2008

½ kg

Fallegur dagur í Sønderborg

Posted in H&R on March 30th, 2008

Hún konan mín var svo yndisleg að bjóða mér út að borða á fimmtudaginn. Við hittumst inni í Sönderborg, fengum okkur smá labb á bryggjunni með voffakrílin okkar fyrst og fórum svo á Djengis Khan, Mongolian Barbeque sem var rosalega gott.
Á bryggjunni var okkur veitt eftirför af frekar aggressívum svönum sem voru sko ekki spor hrifnir af Lúlla. En Lúlli var ekkert mikið fyrir að kíkja fram af brúninni þannig að þeir náðu nú aldrei í nefið á honum, létu bara nægja að hvæsa á hann.
Ég náði fullt af svaka flottum myndum í sólinni - kíkið á myndasíðuna til að sjá meira!

Loksins kom snjór í sveitinni

Posted in H&R on March 30th, 2008

Eftir að hafa búið hérna í sveitinni í rúmt ár, kom í fyrsta skiptið smá snjór sem stoppaði eitthvað. 24.mars snjóaði bara alveg ágætlega, en sem betur fer stoppaði hann nú ekki lengi. Dúllu fannst þetta samt geðveikt skemmtilegt, spændi fram og til baka í snjónum!

Fallegur dagur á Kegnæs

Posted in H&R on March 19th, 2008


Nýjar myndir á myndasíðunni….!

Takk fyrir kveðjurnar :-)

Posted in H&R on March 1st, 2008

Ég vildi bara þakka fyrir afmæliskveðjurnar sem ég fékk um daginn þegar ég varð hundgömul - eða hundeldri ætti ég að segja kannski hehe. Ég fékk fjórar fínar gjafir - ættfræðiforrit frá ástinni minni, fínan Nike bol frá mömmu og pápa, rundsav (man ekki hvað hún heitir á íslensku - en þetta er sög) frá Árna, Kristínu og Sveini Agli og svo Ratatouille á DVD frá Arnheiði og Dennis :clap_tb: :clap_tb: :clap_tb: :clap_tb: Vúhúúúú!!! Frábærar gjafir og ég segi bara takk fyrir mig!!! Knús og kossar til ykkar allra :grin1_ee:

Hellulagningin gengur vel

Posted in H&R on February 24th, 2008

Ég er nú ekki búin að vera mjög aktív þessa vikuna við að leggja hellur í innkeyrsluna þar sem að kroppurinn var aðeins farinn að kvarta undan þreytu. En í gær kom Rasmus facademester og hjálpaði mér í nokkra tíma. Og það var sko hægt að sjá mun þegar hann fór aftur :thumbup_tb:

Við fengum þetta líka fína veður meðan við vorum að vinna og svo akkúrat þegar við hættum byrjaði að rigna, þannig að tímasetningin var frábær :thumbup_tb:

Hellulögn byrjuð!

Posted in H&R on February 9th, 2008

Ég er búin að fá góða gesti til að hjálpa mér að helluleggja innkeyrslunar (alltaf nóg að gera í sveitinni). Þetta er náttúrulega brjálað púl, en hellurnar eru sem betur fer litlar þannig að þetta gæti verið verra ;-)

Undirbúningurinn er náttúrulega það sem tekur langmestan tíma en nú erum við komin með tæknina þannig að þetta á eftir að ganga ágætlega á morgun (vonandi!).

Þetta ætti að hjálpa mér að hugsa um eitthvað annað en pirring…

Posted in H&R on February 7th, 2008

Öööömurlegur dagur!!

Posted in H&R on February 7th, 2008

Ok ég veit að ég á að vera jákvæð, en þetta er bara búinn að vera ÖMURLEGUR dagur! Ég mætti í vinnuna klukkan sex í morgun og átti að vera búin kl. 14, en náði ekki að klára fyrr en hálf-fjögur! Það var þvílíkt vesen allan daginn í vinnunni (þessvegna komst ég ekki í burtu fyrr), fólk virtist almennt vera orðið frekar pirrað á þessum degi og það bætti náttúrulega ekki stemmninguna. Ég er búin að vera að deyja úr stressi, bæði útaf vinnunni og því að á morgun koma hellurnar, áðan kom sandurinn og á morgun kemur vinnumaður að hjálpa mér að byrja að leggja hellur í innkeyrsluna. Read the rest of this entry »

Er veturinn kominn? :-O

Posted in H&R on February 2nd, 2008

Í gær voru liðin 7 ár frá því við kellurnar fluttum til Danmerkur. Ég var alveg búin að gleyma því reyndar, í þessari frábæru blöndu af mígreniskasti og tannpínu sem ég naut út í ystu æsar í gær á leið heim úr höfuðborginni, en konan mín minnti mig á það í dag. Dálítið skrýtið að hugsa til þess að það sé svona langur tími liðinn. Mér finnst nú samt ekki eins og það hafi gerst í gær, það hefur bara gerst of mikið til að það gæti passað :laugh_tb:

Það er annars búið að vera brjálað rok hérna í gær og fyrradag. Þegar ég var á leiðinni heim var brúin nýbúin að opna, og var ennþá lokuð “vindfølsomme” ökutækjum (hvað heitir það á íslensku? vindviðkvæm??). Svo tók ég ferjuna frá Fjóni yfir á Als og það skelltist hver stór-aldan á fætur annari á stafn ferjunnar þannig að það drundi í öllu og bílinn hristist. Ég hélt á tímabili að við hefðum siglt á eitthvað en það var víst ekki í minni ferju, heldur annarri sem var að sigla hjá Middelfart. Hún sigldi á bauju greyið, nýkomin úr 8 vikna slipp og þurfti að snúa við og fara beint aftur í slippinn :huh_tb:

Svo byrjaði að snjóa í dag!! Við vorum annars að vona að við næðum heilu ári í nýja húsinu án snjós, en það tókst bara að ná 11 mánuðum hehe. Gengur bara betur næst :thumbup_tb:

Komst í gegnum daginn

Posted in Ferðalög, H&R on January 29th, 2008

Jæja þá er ég komin heim á hótel eftir langan og strangan dag. Þetta var mjög skemmtilegt samt, alls ekki þannig að mér hafi leiðst neitt, og ég lærði helling af nýjum hlutum. :clap_tb: Tannpínan kom akkúrat þegar ég var að klára þannig að það passaði ágætlega að ég gat farið heim á hótel, tekið verkjapillur og slappað af :thumbup_tb: Eiginlega þyrfti ég að vera að vinna núna en ég get bara ekki komið mér í það, sit bara við tölvuna og pikka þetta og horfi á Discovery :bye_tb: Svaka stuð :tongue1_tb: Það er annars dáldið kalt í Köben, þurrt, en frekar kalt. Það er svona að koma norður á bóginn, það er alltaf svo hlýtt í sveitinni heheh.

Tannpína í Köben

Posted in H&R on January 28th, 2008

Nú er ég komin til Kaupmannahafnar, verð í heimsókn hjá “útibúinu” í Avedöre fram á fimmtudag/föstudag. Ég þurfti annars að byrja vikuna á því að fara til tannlæknis, enda búin að vera að drepast í tannpínu síðan á föstudaginn. Ég hélt að það hefði brotnað upp úr fyllingu, en það kom í ljós að það var komin stór hola út frá einni silfurfyllingunni. Tannlæknirinn sagði mér að ég þyrfti að fara að láta skipta silfurfyllingunum út með plastfyllingum því að það er víst takmörkuð ending á silfrinu. En allavegana, ég er bara búin að vera að DEYJA úr tannpínu :cry_tb: Og það skánaði því miður ekki eftir tannlækninn, því að hann þurfti að bora svo svakalega mikið. Svo er víst byrjuð að myndast önnur hola við hliðina á þessari tönn :cry_tb: þannig að ég þarf að fara aftur í næstu viku til að klára.

Svona vorum við nú sætar einu sinni ;-)

Posted in H&R on January 27th, 2008

Sjá meira á www.hafdal.smugmug.com

Gamlar myndir

Posted in H&R on January 26th, 2008

Ég er að fara í gegnum gömlu myndirnar okkar og sortera þær aðeins. Þær eru á geisladiskum og dvd diskum út um allt þannig að núna er ég að setja þær allar á annan harða diskinn hjá mér og svo nota ég MS Digital Image Suite Library til að setja lykilorð á myndirnar þannig að ég geti leitað í þeim. Mjög sniðugt semsagt. Því miður virðast einhverjar af myndunum vera skemmdar, þannig að það er kannski ekki seinna vænna að ná þeim af geisladiskunum.

En allavegana, ég er búin að rekast á nokkrar ansi góðar myndir þarna og er að spá í að skella inn einni og einni sem mér lýst vel á hér á síðuna og svo er ég að bæta inn myndaalbúmum á myndasíðuna okkar. Hellingur að gerast sko!

Hvað er áhugaverðast á Íslandi?

Posted in H&R on January 21st, 2008

Ein samstarfskona mín er að undirbúa ferð til Íslands í sumar. Hún er víst ein af þessum hestakonum, og langar mikið í ferðalag á hestbaki. Hún fór að spyrja mig hvað væri gott og gaman að skoða á Íslandi, og hvort ég þekkti eitthvað til þessara fyrirtækja sem eru að skipuleggja hestaferðir, en þar sem ég er tóm (svona fyrir utan Gullfoss og Geysi, Bláa Lónið og þessa túristastaði) og voða lítil hestakona, þá datt mér í hug að athuga hvort að einhver hafi uppástungu fyrir mig - svona til að ég geti virkað pínu klár þegar ég fer að leiðbeina henni :-)

Heimsókn í sveitina

Posted in Gestir, H&R, Húsið okkar on January 21st, 2008

Hann Árni Siggi var svo indæll að kíkja í heimsókn til okkar um helgina og hjálpa okkur að klára grindverkið (þeas aðra hliðina - hin verður að bíða þar til búið er að mála). Hann kom með lestinni á föstudagskvöldinu og svo var vaknað snemma og farið í gang með að saga, negla og égveitekkihvað. Við vorum nú ansi heppin með veður á laugardeginu, það var ágætlega kalt, en þurrt og sólin birtist af og til.

Sunnudaginn var líka byrjað snemma, nóg að gera, og okkur tókst að klára grindverkið - allt nema hurðina, og það var bara af því að okkur vantaði meira efni. Lúlli var frekar mikið svekktur þegar hann sá að girðingin var búin, því nú getur hann ekki lengur stungið af! Svo hjálpaði hann Árni okkur líka með að setja upp loftlista í forstofuna, þannig að það er eiginlega búið, límið kláraðist því miður (lélegur undirbúningur, ég veit!) þannig að það vantar smá bút. En nú er orðið ROSALEGA fínt hjá okkur og ég hef alveg nóg að “dunda” mér við þar til Árni kemur næst í heimsókn hehehe :-)

Nýr bíll?

Posted in H&R on January 5th, 2008

Þar sem gamli Opelinn minn er orðinn ansi ryðgaður og kemst ekki gegnum skoðun nema við gerum við hann fyrir mörg þúsund danskar krónur, hef ég verið að leita mér að nýjum bíl yfir Jólin og ég er búin að festa mér (þannig að það er eiginlega alveg öruggt að ég kaupi hann) Hyundai Getz 1,5 CRDi Dísel árgerð 2004. Mjög fínn bíll og aðeins keyrður 81.000 km. Hann kemst ca 23 km á líternum þannig að það er ansi mikill munur frá Opelnum sem komst u.þ.b. 12 km á líternum! Þar að auki er þetta díselbíll sem er enn hagstæðara, þar sem díselinn er ódýrari en bensínið :grin1_ee:

Hyundai Getz

Gott lag!

Posted in H&R on December 22nd, 2007

Ég fatta ekki alveg augnmálninguna hennar og hárgreiðsluna, en hún getur sungið

Jólin nálgast

Posted in H&R on December 17th, 2007

Já Jólin nálgast, og við erum ekki nærri því tilbúnar! Að vísu erum við komnar með svaka stórt og flott jólatré - svo stórt að toppurinn er sveigður meðfram loftinu! Hún konan mín vildi stórt og flott tré, þannig að ég fór og keypti stórt og flott tré :tongue1_tb:

Read the rest of this entry »

Demolition time!

Posted in H&R, Húsið okkar on December 9th, 2007

Það var ‘demolition time’ í dag hjá okkur! Í staðinn fyrir að vera með eldhús og stofu, erum við núna komnar með það sem danirnir kalla “køkken alrum” ef ég man rétt. Vegna tímaskorts tókst okkur ekki að klára þetta alveg en það er samt hægt að sjá hvað þetta verður flott þegar við erum búnar ;-) Fleiri myndir á myndasíðunni okkar (sama password og var á þessari síðu).

FYRIR:
Fyrir

EFTIR:
x

Helgin búin

Posted in H&R on November 18th, 2007

Þessi helgi flaug hjá eins og ég veit ekki hvað. Allt í einu er bara komið sunnudagskvöld og við á leiðinni í háttinn. Við erum samt búnar að vera duglegar um helgina - ekki í húsinu, heldur okkur sjálfum. Hanna Sif er búin að fara í ræktina föstudag, laugardag og sunnudag og ég og voffarnir erum búin að fara í göngutúra alla þessa daga líka :-) Í gær fórum við m.a.s. með Hönnu Sif til Sönderborg og löbbuðum í Sönderskov, hundunum fannst það rosalega spennandi.
Kegnæs
Read the rest of this entry »

Læsti mig úti!

Posted in H&R on October 31st, 2007

Þá er mér búið að takast að læsa mig úti í fyrsta skiptið. Hanna Sif var á foreldrafundi í gærkvöldi þannig að við voffarnir vorum bara ein heima. Svo um 9-leytið ákvað ég að nú væri að nálgast háttatíma, þannig að það var kominn tími á að fara út með voffana til að p&k. Ég smeygði mér í töfflurnar mínar, var nú í hettupeysu sem betur fer en ekki á stuttermabol, og hugsaði með mér “muna að taka úr lás”, þegar ég opnaði hurðina. Svo var ég að hugsa svo mikið um það hvað ég myndi gera ef ég myndi einhverntímann læsa mig úti að ég bara labba út um dyrnar og hoppa niður af tröppunni og skelli hurðinni á eftir mér….!
Read the rest of this entry »

Allt að verða vitlaust í sveitinni!

Posted in H&R on October 27th, 2007

Þetta er búinn að vera ansi annasamur dagur hérna hjá okkur í sveitinni. Við vorum báðar vaknaðar kl. 6 í morgun, Hanna Sif þurfti að mæta í vinnuna þar sem það var vinnulaugardagur, og ég ætlaði að vera dugleg í grindverkinu :wink_ee: Svo var búið að bjóða okkur í afmæliskaffi kl. 9 hjá nágrannanum okkar, henni Helenu, og þar sem Hanna Sif átti að mæta kl.8:30 í skólann, fór ég ein í kaffið.

Read the rest of this entry »

Harðfiskur og ostar

Posted in H&R, Vinnan on October 16th, 2007

Ég hitti mömmu og pápa um daginn og þau komu með harðfisk og osta (piparost og höfðingja) fyrir mig til að leyfa kollegunum mínum að smakka. Ég fór með þetta í vinnuna í dag og ostunum var mjög vel tekið, en það lá við að mér væri hent öfugri út þegar ég opnaði harðfiskpokann og mér tókst bara að fá eina til að smakka :P En það er svosem bara í góðu lagi, því þá getum við kellingarnar bara japlað á þessu sjálfar :lol_tb:

Piparostur

Stofan

Posted in H&R, Húsið okkar on October 15th, 2007

Hún konan mín er svo dugleg að skipuleggja innréttinguna hérna hjá okkur, og er búin að ná að gera stofuna rosalega fína. Við fengum okkur ekki svona venjulega borðstofustóla við borðstofuborðið okkar, heldur vildum við hafa þægilega stóla þannig að maður geti setið lengi og spjallað þegar gestir eru. Við vorum svo með nágranna okkar í mat á laugardagskvöldið og það voru allir mjög ánægðir með þetta fyrirkomulag :-)

Borðstofan

Sjá fleiri myndir á myndasíðunni okkar.

Við erum að fara á tónleika 1. júní 2008 :P

Posted in H&R, Skemmtun on October 10th, 2007

Í Augustenborg Slotspark að hlusta á þennan herra:
Mark Knopfler

L-word…?

Posted in H&R on October 9th, 2007

Við fengum sendingu úr IKEA í dag og Hanna Sif var sem betur fer komin heim úr vinnunni til að taka á móti vörunum. Hún var að horfa á L-word þegar hún heyrði einhver hljóð úr innkeyrslunni, svo hún dreif sig að setja á pásu. Svo fór hún til dyra og þá voru þetta flutningakallarnir. Þeir burðuðust inn með vörurnar og þegar þeir komu inn í stofu kom skrýtinn svipur á þá þegar þeir sáu sjónvarpið. Hanna Sif hafði þá sett á pásu akkurat í svaka kynlífssenu (með tveim konum) þannig að þeir hafa örugglega haldið að hún væri að horfa á svaka bláa mynd á miðjum þriðjudegi!! Þeir urðu amk frekar vandræðalegir víst eftir þetta. hahahahahha :doh_tb:

Þýskalandsferð

Posted in Ferðalög, H&R on October 7th, 2007

Við skelltum okkur til Þýskalands í gær, í fyrsta skiptið með voffana með okkur og svo buðum við Arnheiði að sjálfsögðu með. Leiðin lá fyrst til Burger King (algjört möst!) þar sem ég fékk mér Big King borgara nammi nammi namm! Svo keyrðum við í Scandinavian center og versluðum aðeins. Mér og Arnheiði tókst að gera okkur að algjörum fíflum í þessari ferð - svosem ekki í fyrsta skiptið hehe.

Read the rest of this entry »

Sunnudagurinn 7. október

Posted in H&R, Húsið okkar on October 7th, 2007

Það var allsherjar garð-tiltekt hjá okkur í dag. Við fórum þrjár ferðir á haugana með allskonar dót og svo var ég í tvo tíma að slá garðinn (grasið var orðið dáldið hátt!). Planið var að fara með allt grasið á haugana en þar sem þeir loka kl. 14 þá náði ég því ekki. En nú stendur kerran okkar úti í garði, alveg kúf full af grasi! Þannig að ég verð að rúlla með það á morgun á haugana.

Read the rest of this entry »

5 ár flogin hjá!

Posted in H&R on September 16th, 2007

14. september 2002

Fleiri myndir frá þessum frábæra degi hér!

Brúðkaupsafmælið

Posted in H&R on September 15th, 2007

Við fórum út að borða í gærkvöldi á veitingastaðnum hérna á hótelinu (við skiptum um hótel, þar sem Hönnu Sif tókst að finna ódýrara hótel :tongue1_tb:). Veitingastaðurinn heitir La Cocotte og er víst voða fínn. Við fengum þriggja rétta kvöldverð inni í tilboðinu sem við fengum þannig að við vorum bara flottar á því :thumbup_tb:

Read the rest of this entry »

Copenhagen here we come!

Posted in Atburðir, Ferðalög, H&R, Skemmtun on September 12th, 2007

Í tilefni þess að við eigum 5 ára brúðkaupsafmæli höfum við ákveðið að skella okkur til Köben. Við erum m.a.s. það flottar á því að við erum búnar að bóka hótel Høje Taastrup, þar sem við verðum frá fimmtudagskvöldi til sunnudags :thumbup_tb: Þetta verður algjör afslöppunarferð þar sem við ætlum bara að njóta þess að vera saman :wub_tb:
Hótelherbergið

Read the rest of this entry »

Svona lítur innkeyrslan út núna

Posted in H&R on September 9th, 2007

Innkeyrslan

Gardínur í stofuna

Posted in H&R, Húsið okkar on September 9th, 2007

Þar sem það er nú farið að kólna ansi mikið þá urðum við að drífa í því að skella upp gardínum í stofunni. Þar er veggur sem er næstum því allt gluggar þannig að það kemur kuldi þar í kring. Þrátt fyrir hor og hálsbólgu skoppaðist ég í það að koma gardínunum upp og núna er þetta voða flott :lol_wp:

Stofugardínurnar

Ný innkeyrsla!

Posted in H&R, Húsið okkar on September 8th, 2007

Það er búið að vera hasar hér síðan fyrir klukkan átta í morgun. Loksins, loksins var byrjað á að hreinsa út innkeyrsluna okkar og setja undirlag fyrir hellur í staðinn :clap_tb: Þeir voru tveir í þessu saman, annar á gröfu og hinn á vörubíl og ég stóð og horfði á og þóttist vera voða dugleg :jittery_tb:

Innkeyrslan tekin í gegn

Read the rest of this entry »

Snákur í Paradís

Posted in H&R, Húsið okkar on September 3rd, 2007

Ég var að tala við nágrannann í byrjun ágúst þegar við heyrðum þrusk við endann á innkeyrslunni hjá þeim (sem liggur upp að garðinum hjá okkur). Ég sá nú ekki neitt en hún granna mín sagðist hafa séð litla slöngu. Seinna sama daginn náði hún svo myndum af “krílinu”.
Snákur í Paradís

Fleiri myndir á myndasíðunni!

Ástarsaga úr sveitinni

Posted in H&R on August 31st, 2007

Það er orðið allt of langt síðan að það heyrðist eitthvað í okkur þannig að ég ákvað að skella nokkrum línum inn svona til að sýna smá lit!

Það er allt vitlaust hjá okkur í augnablikinu, Dúlla er á lóðaríi og Lúlli er bara gjörsamlega að fara yfirum! Ég (Rakel) er búin að sofa í gestaherberginu síðustu 5 nætur með Lúlla hjá mér á meðan að dúllurnar mínar tvær eru í hjónaherberginu. Svo vælir Lúlli alla nóttina - þrátt fyrir að ég segi honum að þegja á 5 mínútna fresti - þannig að ég hef ekki fengið mikinn svefn síðustu dagana.
Read the rest of this entry »

Bókasafnið okkar

Posted in H&R on August 12th, 2007

Ég setti að gamni inn link á síðu þar sem er hægt að skoða bókasafnið okkar. Þetta er að vísu bara smá brot af þeim bókum sem við eigum þar sem það tekur tíma að skrásetja þetta allt, en markmiðið er að hafa þetta allt skipulagt - maður er svo mikill nörd! :rasberry_ee: Já og svo er útlitið heldur ekki endanlegt!

Smelltu hér til að skoða bókasafnið

Eitt bilið enn :-)

Posted in H&R, Húsið okkar on August 12th, 2007

Mér tókst, í hitanum í dag, að koma upp enn einu bili :thumbup_tb:. Þetta er samt búið að ganga hægt því ég var veik mestalla síðustu viku og það er ekkert eins pirrandi eins og að vera veik og horfa útum gluggann á hálfkláraða girðingu :bigsurprise_ee:
Girðingin

Smá breyting

Posted in H&R on August 10th, 2007

Ég setti inn nýja mynd á toppinn á síðunni - eitthvað sem kemur frá okkur sjálfum, annað en öldur við strönd eins og var áður. Myndin er nú ekki neitt súpergóð, en sýnir vitann á Kegnæs sem er eiginlega það fyrsta sem maður keyrir framhjá þegar maður kemur inn á Kegnæs.
Hann er voða krúttlegur, 18 metra hár og það er víst hægt að labba upp í hann og þá er maður með fínasta útsýni m.a. yfir til Þýskalands.

Meira um vitann hér

Skyr með brómberjum :P

Posted in H&R on August 7th, 2007

Ég trítlaði út í garð áðan og týndi nokkur brómber til að hafa með skyrinu sem ég keypti um daginn. Það kom loksins að því að það var eitthvað gagn af þessum helv… þyrnirunnum sem eru búnir að vera að angra mig í allt sumar :thumbup_tb:

Skyr með brómberjum

Borðstofusettið komið!

Posted in H&R, Húsið okkar on August 7th, 2007

Eftir 6 vikna bið, fengum við loksins nýja borðstofusettið okkar í gær :grin1_ee: :lol_ee: Við erum því miður ekki búnar að mála vegginn sem skápurinn og skenkurinn eiga að vera upp við, þannig að þetta er ekki alveg komið “på plads”. EN við erum rosalega ánægðar með nýja settið okkar :clap_tb: Nú vantar okkur bara mjöööööög þægilega stóla við borðstofuborðið og þá er þetta fullkomið :thumbup_tb:
Borðstofusettið okkar

Fjögur “bil” búin!

Posted in H&R, Húsið okkar on August 7th, 2007

Mér tókst að setja upp eitt bil í viðbót á sunnudaginn - þetta er bara að verða flott :jittery_tb:
Grindverkið

Grindverkið mjakast áfram

Posted in H&R, Húsið okkar on August 5th, 2007

Eins og sum ykkar kannski vita höfum við verið að byggja grindverk utanum lóðina okkar. Þetta verður ekkert smá grindverk, 1,80 m á hæð og tvöfalt þannig að það á ekkert að vera hægt að sjá í gegn inn á lóðina okkar :smile2_ee: En þetta er líka geðveik vinna, og þ.a.l. gengur þetta dálítið hægt - ég vil helst segja hægt og örugglega :tongue_laugh_ee: Í gær tókst mér að klæða eitt “bil” í viðbót þannig að nú eru komin þrjú (ekki spyrja af hvað mörgum :cheese1_ee:). Eeeen, þetta verður rosalega flott þegar þetta er búið :clap_tb:

Grindverksvinna

Nýjar myndir á myndasíðunni

Posted in H&R on August 4th, 2007

:clap_tb: Ég setti inn nýjar myndir á myndasíðuna - m.a. af grindverksbyggingu :cheese1_ee:
Svo breytti ég líka þemanu, eins og sumir taka kannski eftir OG ég setti inn nýja funktion, nú er hægt að sleppa sér alveg í því að nota smilies þegar maður setur inn komment! Allir að skrifa komment hjá okkur :snake_ee: :jittery_tb: :lol_tb: :bye_tb: :tongue_laugh_ee: :grin1_ee: :clap_tb:

Er hann ekki sætur ;-)

Posted in H&R on August 4th, 2007

Frissi froskur

Ég var að vinna úti í garði um daginn og þurfti að draga til svona plastdúk sem hafði legið í innkeyrslunni hjá okkur. Þegar ég dró dúkinn í burtu kom þessi “litli” hlunkur í ljós! Hann var svo feitur að hann gat eiginlega ekki hoppað, en mér fannst hann pínu krúttlegur. Svo var ég eitthvað að skoða rassinn á honum (bara úr fjarlægð :P) og haldiði ekki að hann hafi bara pissað á mig!! Þvílík sprauta bara! heheh!

Fékk vinnu í Helvíti:-p

Posted in H&R on July 12th, 2007

Það er allt í fullum gangi hjá okkur í sveitinni, og við alveg að springa úr hamingju :grin: Það er svo mikið við að vera og allt er svo yndislegt :grin: Við erum komnar á fætur yfirleitt fyrir sex á morgnana, Rakel er mætt í vinnu kl. 7 eða fyrr, og ég hef nóg við að vera yfir daginn þar til frúin kemur heim, og þá förum við yfirleitt saman í að vinna í húsinu okkar. Þessa dagana erum við að byggja girðingu í kringum garðinn, og eftir það verður innkeyrslan tekin í gegn. Planið er að helluleggja þar, en við ætlum að byrja á að grafa allt upp og setja möl, sem við látum svo sitja fram að næsta sumri og helluleggjum þá. Á næstu dögum ætlum við svo að fá tilboð í nýja glugga, og vonandi náum við að skifta út að minnsta kosti nokkrum gluggum fyrir veturinn. Read the rest of this entry »

“Stormur” á Kegnæs

Posted in H&R on June 27th, 2007

Haldiði að það hafi bara ekki verið rok í morgun þegar við vöknuðum!  Pullurnar sem voru á garðsettinu okkar voru foknar út í garð og krúttlega tómatatréið mitt var oltið á hliðina.  Þegar ég keyrði í vinnuna sá ég ruslatunnur úti á götu og kornið á ökrunum var bara búið að leggjast flatt - hvað gera danir nú, hugsaði ég með mér.

Read the rest of this entry »

Brotin gleraugu og brotið framljós

Posted in H&R on June 27th, 2007

Ég og bílinn minn eigum ýmislegt sameiginlegt.  Um daginn þegar ég var að bakka bílnum hennar HS framhjá mínum bíl, tók ég eftir því að annað framljósið var alveg í smalli.  Þannig að ég varð að fjárfesta í nýju framljósi - sem ég er reyndar ekki ennþá búin að ná að setja í/á bílinn (ég kenni bara veðrinu um það framtaksleysi). 

Read the rest of this entry »

Nýja draumavélin mín! :-)

Posted in H&R on June 23rd, 2007

Það eru komnir nokkuð margir mánuðir síðan að myndavélin mín eyðilagðist og ég læt mig dreyma um að fá nýja myndavél. Ég er búin að finna þá sem mig langar í og það er þessi:

Draumavélin

Hún er m.a. 6 mpix, 12x optical zoom sem samsvarar 36-432mm linsu!!! Bara hrein geðveiki!! Og svo er hún bara rosalega flott!!!! :-)

Bílskúrs-stuð

Posted in H&R, Húsið okkar on June 23rd, 2007

Við byrjuðum daginn snemma til að koma sem mestu í verk í dag. Fyrst fórum við í rúmlega hálftíma göngutúr hérna í kring og om níuleytið vorum við komnar út í gám og byrjaðar að grafa út. Nágrannarnir okkar voru svo indæl að lána okkur kerru þannig að við gátum rúllað út í endurvinnslu með fullt af dósum - enginn pantur á Þýskalandsdósum, og við erum svo náttúruvænar að við viljum ekki bara henda þeim í ruslið :P

Read the rest of this entry »

Hinn endalausi bílskúr

Posted in H&R on June 22nd, 2007

Góðan dag! Ég er barasta í fríi í dag, en það er svosem ekki neitt á döfinni að slaka á. Við komumst nefninlega að því þegar gámakallinn kom og ætlaði að sækja gáminn, að þakplöturnar sem við vorum búnar að henda ofaní gáminn eru úr asbesti! Þannig að núna þurfum við að eyða helginni í að rífa allt úr gámnum, taka þakplöturnar frá og svo henda öllu inn í gáminn aftur!

Read the rest of this entry »

17.júníveður

Posted in Atburðir, H&R on June 17th, 2007

Það er sko ekta 17.júní veður hérna í sveitinni. Alveg GRENJANDI rigning! En það er svosem voða kósí, bara verst að maður getur voða lítið unnið úti þegar það er svona mikil rigning :/ En við horfðum bara á IDOL í staðinn, þeas þangað til að rigningin fór að trufla útsendinguna :P Í gær kíktum við aðeins inn í Sönderborg, fórum á “17.júní” íslendingafélagsins hérna, bara svona hæ og bæ reyndar.

Read the rest of this entry »

Takk fyrir komuna :-)

Posted in Gestir, H&R, Húsið okkar on June 8th, 2007

Gestirnir eru löngu komnir og farnir en við höfum bara ekki haft tíma til að skrifa neitt um heimsóknina fyrr en núna! Það var, eins og alltaf, rosalega gaman að sjá þau öllsömul, og Sveinn Egill hafði frænkur sínar alveg í vasanum, eins og alltaf ;-) Hann verður bara sætari og sætari, ótrúlegt en satt.
Frænka með litla frænda

Read the rest of this entry »

Gestirnir komnir og allt að verða vitlaust

Posted in Gestir, H&R, Húsið okkar on June 2nd, 2007

Gestirnir okkar komu í gærkvöldi eftir langan bíltúr. Það var nú svosem ekki mikið gert annað en að borða kvöldmat og svo spjalla aðeins. Sveinn Egill var eldhress þrátt fyrir að hafa setið 6 tíma í bílnum - það hlýtur að vera sveitaloftið, það bætir, hressir og kætir ;-)

Dagurinn í dag byrjaði frekar rólega, Sveinn Egill svaf frameftir þannig að fullorðna fólkið reyndi að sofa lengur líka. Eftir morgunmat fóru Kristín og Hanna Sif til Þýskalands að versla á meðan við hin fórum fyrst til Augustenborg að skoða verðandi heimilið hennar Arnheiðar og svo til Sönderborg að versla.

Read the rest of this entry »

Gestir um helgina! :-)

Posted in H&R on May 31st, 2007

Við erum að fá gesti í heimsókn yfir helgina.  Árni, Kristín og Sveinn Egill ætla að taka Arnheiði með sér og keyra á nýja bílnum til okkar :-)  Við bíðum að sjálfsögðu spenntar og krossum fingurnar fyrir að það verði sól og gott veður um helgina þannig að það verði sundlaugarpartí!!!! :-)

Stórhættulegar lessur!

Posted in H&R on May 31st, 2007

Hanna Sif fékk vinkonu sína í heimsókn í morgun og þær fengu sér morgunkaffi saman - voða huggó.  Þær spjölluðu að sjálfsögðu um heima og geima og m.a. minntist vinkonan á viðbrögð fólks þegar hún sagði að hún þekkti tvær lesbíur.  Hún var víst vöruð við því að fara í heimsókn til Hönnu Sif því að HS myndi örugglega ráðast á hana (af því HS er lesbía sko) og spurð hvort að hún þyrði alveg að vera að fara í heimsókn til okkar…

Read the rest of this entry »

Nýr kaggi fyrir frúnna

Posted in Atburðir, H&R on May 30th, 2007

Haldiði að við höfum ekki bara keypt “nýjan” bíl í gær - svaka flottan Suzuki Wagon R+, árgerð 1999 (nýjasti bíll sem við höfum nokkurntíma átt!).  Hann er vínrauður og voða sætur og ekki keyrður nema 76.000 km. 

Read the rest of this entry »

Önnur löng helgi

Posted in H&R on May 26th, 2007

Vinnuvikurnar eru fljótar að líða þessa dagana, enda eru þetta 4-daga vinnuvikur hvað eftir annað.  Og þó vikan sé 5 dagar þá líður hún líka á “no-time”.  Ég var í Köben í gær á enn-einum fundinum en náði samt að heilsa upp á Kristínu, Svein Egil og Arnheiði í smátíma á leiðinni út á völl.  Sveinn Egill stækkar bara og stækkar og er kominn með voða sæta hárgreiðslu :P  Algjört rassgat ;-)

Read the rest of this entry »

Löng helgi

Posted in H&R, Vinnan on May 17th, 2007

Þá er komið  helgarfrí - tíminn flýgur áfram hérna í sveitinni :-)  Ég var í Köben í gær á fyrsta stóra fundinum mínum.  Var með powerpoint sýningu og alles - svaka gaman!  Dagurinn varð samt frekar langur, ég tók flug kl. 7 frá Sönderborg og svo tók ég leigubíl frá vellinum til Hörsholm og það tók “aðeins” rúmlega klukkutíma!  Umferðin var algjörlega stopp mestalla leiðina. Read the rest of this entry »

Rigning

Posted in H&R, Vinnan on May 12th, 2007

Rigningin heldur áfram hér í sveitinni, sem er ágætt fyrir garðinn okkar :P En maður verður eitthvað svo latur í þessu veðri sem er ekki alveg eins gott. Það gengur ágætlega í vinnunni hjá mér og ég er að fara á stóran fund í næstu viku þar sem ég þarf að vera með powerpoint show og þ.a.l. er ég búin að vera að hamast við að setja upp þessi líka fínu gröf í Excel til að geta sýnt eitthvað spennandi.

Read the rest of this entry »

Af Tupperware og fleiru….

Posted in H&R on May 10th, 2007

Kraftaverkin gerast enn - við fórum á Tupperwarekynningu í síðustu viku! Ég þurfti bara að safna kjarki til að skrifa um það, hehehe :shock: :roll: :razz: Hélt að ég myndi aldrei aftur fara á Tupperware kynningu, þar sem ég var einu sinni sjálf að selja Tupperware og er með fulla skápa og skúffur af þessum vörum. En þetta var nú samt bara gaman hjá okkur :wink: Keyptum klakabox, eitthvað sem okkur hefur alltaf vantað, nestisbox og mælikönnu, annar hlutur sem okkur bráðvantaði. Allt náttúrlega alveg stórkostlega sniðugt og með ævilanga ábyrgð :mrgreen: Read the rest of this entry »

Nokkrar myndir

Posted in H&R, Húsið okkar on May 8th, 2007

Það er bara algjört skítaveður hérna í dag - rok og rigning - en það er samt alltaf voða kósí í sveitinni :P Ég er náttúrulega búin að vera í vinnunni og Hanna Sif er búin að vera rosa dugleg hérna heima á meðan. Hún er alveg að missa sig í að rífa niður eldhúsinnréttinguna og svo getur hún ekki beðið eftir því að losna við sólstofuna :-)

Read the rest of this entry »

Löng helgi

Posted in H&R, Húsið okkar on May 6th, 2007

Það var Store Bededag hérna á föstudaginn þannig að það var löng helgi hjá mér :-) Við erum búnar að ná að koma ansi miklu í verk síðustu daga - fórum í göngutúr á ströndina, allt stofuloftið er núna orðið hvítt og flott. Hanna Sif byrjaði að rústa eldhúsinnréttingunni og svo erum við byrjaðar að rífa niður sólstofuna. Svo var garðurinn auðvitað sleginn og hitt og þetta annað.

Núna erum við bara alveg búnar á því og liggjum stjarfar uppi í sófa.
ATH. Nýjar myndir á myndasíðunni - frá göngutúrnum okkar á ströndina hérna.

Vores svømmingpool

Posted in H&R on May 2nd, 2007

Mål: 488 x 91 cm.

Vid mælum ekki med tvi ad folk stingi ser :P

Stuttar fréttir

Posted in H&R, Skólinn, Vinnan on April 24th, 2007

Það er orðið dálítið síðan við blogguðum síðast og það er einfaldlega vegna þess að við höfum ekki haft tíma!  Ég var í Kaupmannahöfn, miðvikud, fimmtud. og föstudag í síðustu viku til að heilsa upp á fólkið þar og svo er ég búin að vera að eyða kvöldunum í að reyna að vinna eitthvað.  Ég er að læra á tölvukerfi sem heitir SAP og það tekur pínu tíma að ná að muna alla hlutina sem hægt er að gera í því (ég held ég nái nú aldrei að læra ALLT sem hægt er að gera í því - en vonandi næstum því allt :P )

Read the rest of this entry »

Ég kveikti í sjálfri mér í gær….

Posted in H&R on April 17th, 2007

Alveg satt!!! :shock: Ég var að setja gas á kveikjarann í gær, ætlaði að kveikja á nokkrum kertum og hafa það huggó. Var búin að ná að kveikja á nokkrum kertum sem sagt áður en gasið á kveikjaranum kláraðist, en var ekkert að spá í því neitt, nei nei. Komst svo barasta að því að það er ekki svooooo sniðugt að vera með logandi kerti og gas fyrir frama sig!!! :shock: Allt í einu loguðu handleggirnir, hnén og andlitið á mér bara (sat í bogin yfir sófaborðinu sko). Rakel greyið fékk algert sjokk og veinaði upp fyrir sig, og ég náði ekki einu sinni að fatta hvað var að gerast, því þetta gerðist svo hratt. Sem betur fer er ég með góð viðbrögð - þó ég sé orðin 35 ára :cool: - og náði einhvernvegin að slökkva eldin áður en ég brenndist eitthvað alvarlega. Toppurinn á mér sviðnaði aðeins, og ég er ekki með mörg hár eftir á handleggjunum og hnjánum, en hva, veitti hvort eð er ekki af smá háreyðingu :wink: Svo sveið mig pínu í andlitið þegar ég fór að sofa, en hva, setti bara krem á það. Frekar klikkað… :razz:

Takk fyrir mig:)

Posted in H&R on April 16th, 2007

Ég er barasta orðin 35! Hugsa sér, mér líður bara alls ekki þannig - finnst ennþá að ég sé bara 25 :wink: Allavega í hausnum á mér, restinn af líkamanum heldur að hann sé orðin 70 eða eitthvað álíka! Hehehe :wink:

Langaði annars bara að þakka fyrir mig, það var barasta fullt af fólki sem mundi eftir mér í gær :smile: Og í morgun þegar ég fattaði að gamli síminn minn var batteríslaus (já, ég er snillingur, ég veit það!) og setti hann í hleðslu, þá bara rigndi yfir mig smsum! :grin: :lol:

Konan mín bauð mér út að borða í gær á Jensens Bøfhus, alveg yndislegt. Og Heimir, sá að þú reyndir að hringja þegar við vorum úti - ég var með símann á mér, en heyrði náttúrlega ekkert í honum…. :oops: …sagði ég ekki að ég væri snillingur? :wink: Hitti vonandi á þig á Skype very soon :mrgreen: Read the rest of this entry »

Hún á afmæli í dag!!!

Posted in H&R on April 15th, 2007

Hún rúsínan mín, Hanna Sif á afmæli í dag - 35 ára hvorki meira né minna!!!!!

Til hamingju með afmælið snúllídúll :*

Eitt stutt

Posted in H&R on April 13th, 2007

Ég var að hlusta á útvarpið á leiðinni í vinnuna í morgun og þau sem voru með morgunútvarpið voru að biðja fólk um að senda inn sögur af því þegar það hafði sent vitlaus sms af stað (annaðhvort vitlaust sms eða rangur móttakandi). Það komu nokkrar skondnar sögur, m.a. af einum sem sendi óvart svona “ég elska þig - þú ert æðisleg” sms til bestu vinkonu kærustunnar í staðinn fyrir að senda það til kærustunnar (hún dömpaði honum nokkrum dögum seinna) og svo sagan sem mér fannst best.
Read the rest of this entry »

Hversdagsleikinn tekin við…

Posted in H&R on April 11th, 2007

Jæja, þá er páskafríið búið, allir gestir farnir, Rakel byrjuð að vinna, hundarnir úti að leika sér allan daginn, og ég á fullu í verkefnavinnu. Reyndar finnst mér sjálfri ég aldrei vera neitt á fullu, en Rakel finnst ég alltaf vera að, og þegar maður er að allan daginn - ja þá er maður líklegast á fullu :wink: :lol: :shock: Það er svo hins vegar spurning hversu miklu maður kemur raunverulega í verk….svona þegar maður er t.d. bara að blogga en á að vera að læra…*hóst* :razz: Read the rest of this entry »

Fyrsti vinnudagurinn!

Posted in H&R, Vinnan on April 10th, 2007

Þá er fyrsti vinnudagurinn búinn hjá mér!  Ég mætti semsagt klukkan 9 í morgun og fékk mjög góðar móttökur, var kynnt fyrir næstum öllum starfsmönnunum (ca 40) þannig að ég var orðin ágætlega rugluð um hádegi.  Svo fékk ég auðvitað að sjá skrifstofuna mína og fæ væntanlega fartölvuna mína á morgun.

Read the rest of this entry »

Nýtt eldhús

Posted in Gestir, H&R on April 8th, 2007

Hanna Sif var svo dugleg að vera að læra í gær þannig að við Arnheiður skelltum okkur aftur í Sönderborg, m.a. að versla í páskamatinn. Þegar við komum heim var klukkan að nálgast fjögur og tíminn hafði bara flogið áfram! Á heimleiðinni fór Arnheiður eitthvað að tala um að hún hafi tekið vinnufötin með sér, en ekkert þurft að nota þau ennþá þannig að ég bara tók hana á orðinu og fékk hana til að hjálpa mér að rífa niður hluta af efri-skápum í eldhúsinnréttingunni hjá okkur :P
Efri skáparnir í eldhúsinu
Read the rest of this entry »

Sólbað á ströndinni

Posted in Gestir, H&R on April 7th, 2007

Þar sem Hanna Sif þurfti að vera dugleg að læra í gær, fórum við Arnheiður í sight-seeing hérna í nágrenninu.  Við byrjuðum á að skoða fínustu sandströndina hérna á svæðinu, Kærneland, sem er í beinu framhaldi af Kegnæs.  Við vorum að sjálfsögðu báðar vopnaðar með myndavél þannig að það var sko tekinn HELLINGUR af myndum :-)
Kærnelandstrand

Read the rest of this entry »

Sunnudagur

Posted in H&R on April 1st, 2007

Fyrstu Páska-gestirnir okkar koma á morgun þannig að við erum búnar að vera á fullu að koma öllu fyrir inni í gestaherbergi og þrífa og laga til á gestabaðinu :P

Read the rest of this entry »

Búin að skila!

Posted in H&R on March 31st, 2007

Stórir hlutir að gerast hér - ég náði að klára verkefnið mitt Í FYRRADAG NB - og það fór í póst í gær:D Þannig að þá er það afgreitt;) Nú tek ég nokkra daga í pásu frá náminu, en held svo áfram, því það bíða ennþá 3 verkefni eftir mér.
En sem betur fer get ég tekið mér pásu, því þá get ég farið að hjálpa konunni minni að koma húsinu í stand:) Read the rest of this entry »

Lærleggur af manni fannst…

Posted in H&R on March 28th, 2007

Ég er búin að vera að renna í gegnum Lögberg (dagblað sem Vestur-Íslendingar gáfu út) og rakst á eftirfarandi grein sem mér fannst pínu skondin :P

Read the rest of this entry »

Byrjuð að mála stofuloftið :s

Posted in H&R on March 28th, 2007

Eins og venjulega er búið að vera nóg að gera hérna í sveitinni í dag.  Ég er byrjuð að mála loftið í stofunni, sem er búið að vera stóra áhyggjuefnið hjá okkur síðan við fluttum.  Við máluðum loftið í svefnherberginu og það tók ansi margar umferðir og stofuloftið er talsvert stærra en það loft.

Read the rest of this entry »

Nóg að gera í sveitinni

Posted in H&R on March 27th, 2007

Þá er ég loksins búin að klára parketlagninguna (í þetta skiptið - maður veit aldrei hvað gerist í framtíðinni :P ) og byrjuð að leggja gólflista í stofunni og á ganginum.  Svo er ég búin að vera að sníða til lista sem koma í stað þröskulda og festa þá þannig að þetta er allt að skríða saman hérna.

Read the rest of this entry »

The monster in our garden!

Posted in H&R on March 25th, 2007

 Jæja ég náði mynd af þessu furðudýri sem er í garðinum hjá okkur!  Einhver sem veit hvað þetta dýr heitir??  Það sést nú ekki nógu vel en lappirnar og fálmarnir eru fjólubláir.

Búin að leggja parketið á stofuna!! :-)

Posted in H&R on March 24th, 2007

Rok á laugardegi

Posted in H&R on March 24th, 2007

Ég er ekki ennþá búin að parketleggja stofuna og ganginn en er mjög nálægt endinum.

 

Read the rest of this entry »

Er hægt að vera sætari??

Posted in H&R on March 22nd, 2007

Rólegur dagur

Posted in H&R on March 21st, 2007

Dagurinn í dag er búinn að vera frekar rólegur, enda erum við eitthvað voðalega þreyttar þessa dagana - I wonder why… :P  Ég verð að reyna að vera duglegri á morgun því að þá er stefnan að byrja á að leggja parket í stofunni.

Read the rest of this entry »

Komin heim í sveitina :-)

Posted in H&R on March 20th, 2007

Þá er maður kominn aftur heim í sveitina til krílanna.  Kristín Rós var svo indæl að taka að sér að skila íbúðinni í gær fyrir okkur þannig að nú er þeim kafla lokið hjá okkur.  Ég keyrði heim seint á sunnudagskvöldinu og lenti í brjáluðu roki og haglél þegar ég var að nálgast Sønderborg. 

Read the rest of this entry »

Lognið á undan storminum…?

Posted in Flutningur, H&R on February 28th, 2007

Það er búið að vera nóg að gera hjá mér í dag.  Pakka, pakka, pakka og jú svo pakkaði ég aðeins meira.  Kellingargreyið mitt var líka rosalega dugleg að hjálpa til þrátt fyrir að vera hundveik :/

Read the rest of this entry »

Verslunartúr og matarboð

Posted in H&R on February 25th, 2007

Já það er alltaf verið að bjóða okkur í mat :-)  Við byrjuðum annars daginn snemma, vorum vaknaðar fyrir átta og ég byrjaði á að fara í snögga sturtu og svo í góðan labbitúr með voffana.

Read the rest of this entry »

Húseigendur!!! :-)

Posted in Flutningur, H&R on February 22nd, 2007

Það var stór stund hjá okkur í dag þegar við skrifuðum undir kaupsamninginn og settum hann í póst :-) 

Read the rest of this entry »

Ekki lengur 30!

Posted in H&R on February 20th, 2007

Jæja þá er maður ekki lengur þrítugur heldur þrjátíuogeins!  Hræðilegt!  Neinei þetta er svosem ágætt, heldur uppávið heldur en niðurávið ekki satt ;-) 

Read the rest of this entry »

Hjónabandsráðgjöf :P

Posted in H&R on February 16th, 2007

Nú erum við kellingarnar búnar að vera saman í tæp 7 ár (minnir mig hehe), og það sem oftast veldur deilum á okkar heimili er það hversu oft þarf að ryksuga :P  Nú eigum við báðar afmæli bráðlega (sumir fyrr en aðrir!) og þar sem við erum að fara að flytja vorum við að ræða hvort við eigum að gefa hvor annarri afmælisgjöf þetta árið eða ekki.

Read the rest of this entry »